Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki er viðurkenndur úrskurðaraðili skv. lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, nr. 81/2019. Nefndinni starfar samkvæmt samþykktum Neytendasamtakanna, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 1. janúar 2025. Nefndina skipa fimm nefndarmenn og fimm til vara. Tveir nefndarmenn skulu skipaður af Neytendasamtökunum, tveir af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og einn nefndarmaður af fjármála- og efnahagsráðherra og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Varamaður formanns er formaður í forföllum hans.
Formaður nefndarinnar er Íris Björk Hreinsdóttir
Varaformaður er Gunnlaugur Helgason.
Heimasíða nefndarinnar er nefndir.is. Þar má finna nánari upplýsingar um nefndarmenn, starfshætti nefndarinnar og úrskurði.