Hoppa yfir valmynd

Samráðshópur ráðuneyta um framvæmd 129. gr. sveitarstjórnarlaga um kostnaðarmat

Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað samráðshóp ráðuneyta um framvæmd 129. gr. sveitarstjórnarlaga um kostnaðarmat. Með vísan til 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, hvílir sú skylda á ráðuneytum að ef fyrirsjáanlegt er að tillaga að lagafrumvarpi, stjórnvaldsfyrirmælum eða öðrum stefnumarkandi ákvörðunum af hálfu stjórnvalda ríkisins muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skuli fara fram sérstakt mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélaga. Ráðuneyti sveitarstjórnarmála skal árlega taka saman yfirlit um kostnaðarmat og skulu formlegar viðræður fara fram um yfirlitið og niðurstöður þess í samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga.

Hópurinn skal tryggja að lögbundið verklag sé viðhaft innan ráðuneyta og samhæfingu þeirra á milli, sem auk þess tryggi skilvirkt samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Skipunartími miðast við embættistíma ráðherra eða ákvörðun hans.

Hópurinn er þannig skipaður:
Hanna Dóra Hólm Másdóttir, viðskiptafræðingur á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, formaður
Hjördís Stefánsdóttir, lögfræðingur á skrifstofu laga, dómsmálaráðuneyti
Elín Einarsdóttir, viðskiptafræðingur, á skrifstofu rekstrar- og þjónustu, utanríkisráðuneyti
Magnús Dige Baldursson, lögfræðingur á skristofu umhverfis og skipulags, umhverfis- og auðlindaráðuneyti
Gísli Rúnar Pálmasson, lögfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar, mennta- og menningarmálaráðuneyti
Guðmann Ólafsson, viðskiptafræðingur á skrifstofu fjárlaga og innri þjónustu, heilbrigðisráðuneyti.
Anna Tryggvadóttir, lögfræðingur á skrifstofu barna- og fjölskyldumála, félagsmálaráðuneyti
Hlynur Hreinsson, hagfræðingur á skrifstofu opinberra fjármála, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Heiður M. Björnsdóttir, hagfræðingur á skrifstofu fjármála, forsætisráðuneyti
Magnús Óskar Hafsteinsson, hagfræðingur á skrifstofu innri þjónustu og rekstrar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum