Hoppa yfir valmynd

Fisksjúkdómanefnd 2021-2026

Matvælaráðuneytið

Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum skipar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fimm menn og jafnmarga til vara í fisksjúkdómanefnd eftir tilnefningu frá eftirtöldum aðilum: Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, Hafrannsóknastofnun, tvo fulltrúa,  Fiskistofu og yfirdýralækni, sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar.  Skv. 1. mgr. 4. gr. laganna fer ráðherra með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Framkvæmd stjórnsýslunnar er að öðru leyti í höndum Matvælastofnunar sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt.  Matvælastofnun skal hafa forgöngu um að stundaðar séu fisksjúkdómarannsóknir og gera tillögur til ráðherra um aðferðir til varnar gegn útbreiðslu fisksjúkdóma, sem getur um í lögum þessum, og annað er að fisksjúkdómum lýtur. Skipunartími frá 21. september 2021 til næstu fimm ára.

Í nefndinni eiga sæti:

    • Sigurborg Daðadóttir, skipuð formaður án tilnefningar
             Varamaður Auður Lilja Arnþórsdótir, tilnefnd af Matvælastofnun

    • Árni Kristmundsson, tilnefndur af Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
             Varamaður Ásthildur Erlingsdóttir, tilnefnd af sama

    • Guðni Guðbergsson, tilnefndur af Hafrannsóknastofnun
             Varamaður Fjóla Rut Svavarsdóttir, tilnefnd af sama

    • Rakel Guðmundsdóttir, tilnefnd af Hafrannsóknastofnun

          Varamaður Jónas Páll Jónsson, tilnefndur af sama

    • Guðni Magnús Eiríksson, tilnefndur af Fiskistofu
             Varamaður Hildur Jana Júlíusdóttir, tilnefnd af sama.

Fastanefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum