Hoppa yfir valmynd

Nefnd um greiningu á áfallastjórnun stjórnvalda vegna faraldursins af völdum COVID-19

Forsætisráðuneytið

Meginverkefni nefndarinnar er að greina áfallastjórnun vegna heimsfaraldurs COVID-19. Í úttekt nefndarinnar verður m.a. fjallað um hvernig stjórnvöld voru undirbúin til að takast á við faraldurinn, hvernig ákvarðanatöku var háttað, hvernig upplýsingum var miðlað og hvernig reynslan hafi verið nýtt jafnharðan til aðlögunar á stefnu og áætlanagerð. Þá mun nefndin fjalla um helstu samfélagslegu áhrif faraldursins.

Formaður nefndarinnar er Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst, en auk hennar sitja Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands, og Trausti Fannar Valsson, dósent við Háskóla Íslands, í nefndinni.

 

Tímabundnar nefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum