Nefndin skal hafa yfirsýn yfir stöðu móttökumála og vera vettvangur til að deila reynslu og þekkingu og fjalla um þau mál sem upp koma í samskiptum stofnana og í þjónustu við einstaklinga.
Verkefni samráðsnefndarinnar er að tryggja sem best samræmi og samhæfingu vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Ekki er greitt fyrir setu í nefndinni að hálfu ráðuneytisins.
Samráðsnefndin er þannig skipuð:
- Linda Rós Alfreðsdóttir, án tiln. formaður.
- Anna Guðrún Björnsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Atli Viðar Thorstensen, tiln. af Rauða krossi Íslands.
- Inga Sveinsdóttir, tiln. af Fjölmenningarsetri.
- Gísli Davíð Karlsson, tiln. af Vinnumálastofnun.
- Þorsteinn Gunnarsson, tiln. af Útlendingastofnun.
Varamenn:
- Guðlaug Hrönn Pétursdóttir, tiln. af Vinnumálastofnun.
- Íris Kristinsdóttir, tiln. af Útlendingastofnun.
- María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Nína Helgadóttir, tiln. af Rauða krossi Íslands.
Skipuð af félags- og barnamálaráðherra 28. maí 2021