Hoppa yfir valmynd
10. mars 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins eflir fjarþjónustu

Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins efla fjarþjónustu á öllum heilsugæslustöðvum sínum. Vakin er athygli á tilkynningu stofnunarinnar um þetta. Eins og þar kemur fram verður símaþjónusta aukin til muna og símatímum lækna fjölgað. Einnig er áhersla lögð á aukna þjónustu í gegnum vefinn heilsuvera.ism.a. með skilaboðoum á mínum síðum og netspjall heilsuveru verður opið alla daga frá kl. 08.00 – 22.00.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum