Hoppa yfir valmynd
25. mars 2020 Innviðaráðuneytið

Framkvæmdum á flugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum flýtt

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Stækkun við flugstöð á Akureyri, flughlað á Akureyri og akbraut á Egilsstaðaflugvelli verða meðal fjölbreytta samgönguframkvæmda í viðamiklum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru um síðustu helgi. Af 20 milljarða króna fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar nema fjárfestingar í samgönguframkvæmdum sex milljörðum króna.

Áformað er að verja milli 500 til 600 milljónum til undirbúnings verkefnanna á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum á þessu ári. Viðbygging við flugstöð á Akureyri mun styðja við ferðaþjónustuna á Norðurlandi þegar uppbygging hefst eftir Covid-19 faraldurinn en einnig er áætlað er að um 50 ársverk verði til við framkvæmdina. Stækkun á flughlaði á Akureyrarflugvelli mun ennfremur auka öryggi flugvallarins. Stefnt er að því að bjóða verkið út á vormánuðum og má áætla að um 40 ársverk skapist hjá verktökum á svæðinu. Á Egilsstöðum eykst rekstraröryggi Egilsstaðarflugvallar og flugöryggi á Íslandi almennt. Að framkvæmdum loknum verður hægt að taka á móti taka á móti um tuttugu stærri flugvélum lokist Keflavíkurflugvöllur. Auk þess skapar framkvæmdin atvinnu á svæðinu á meðan hún stendur yfir.

„Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að efla og fjárfesta í innviðum samfélagsins. Mikilvægt er að bregðast hratt við en gera jafnframt langtímaáætlanir eins og kostur er í þessari erfiðu stöðu sem samfélagið glímir við. Halda áfram að byggja upp vegi, flugvelli og hafnir svo samfélagið verði í stakk búið þegar Covid-19 faraldurinn verður um garð genginn. Þrátt fyrir hrun í ferðaþjónustunni er brýn þörf fyrir uppbyggingu innviða og eru flugvellir einn af lykilþáttum fjárfestingarátaksins. Verkefnin eru arðbær. Þeim er hægt að flýta og þau skapa fjölbreytt störf með skömmum fyrirvara. Notum því tímann vel og höldum áfram,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Í nýrri flugstefnu sem kynnt er í samgönguáætlun er horft til lengri tíma og rík áhersla lögð á að alþjóðaflugvellir landsins mæti sem best þörfum flugrekanda fyrir varaflugvelli og hliðum inn til landsins verði fjölgað til að efla ferðaþjónustu. „Hjá ríkisstjórninni er annað átak í undirbúningi sem tekur við á árunum 2021-2023 og mun flýting þessara framkvæmda sem og annarra samgönguframkvæmda birtast þar,“ segir ráðherra.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum