Hoppa yfir valmynd
27. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Bakvarðasveit lögreglu í undirbúningi

Ríkislögreglustjóri vinnur að því að koma á fót bakvarðasveit í ljósi Covid-19 farsóttarinnar. Ríkislögreglustjóri kynnti þessi áform á daglegum upplýsingafundi almannavarna í dag.

Á vef lögreglunnar hefur nú verið birt auglýsing sem beint er að þeim hafa próf og réttindi til að starfa sem lögreglumenn en hafa horfið til annarra starfa.

Dómsmálaráðherra hvetur þá sem geta og uppfylla skilyrði skráningar að skrá sig sem bakverði lögreglunnar.

Nánari upplýsingar um bakvarðasveitina og skráningu á hana er hægt að fá hjá ríkislögreglustjóra í póstfanginu [email protected] eða í síma 444-2593.  Eingöngu er tekið við skráningum í útfylltu skráningarformi. Skráningarformið og nánari upplýsingarmá finna á vef lögreglunnar

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum