Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins

Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

Í kjölfar þess að frestunin var samþykkt barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi frá embætti forseta Íslands þar sem þess var óskað að launahækkun forseta yrði einnig frestað til næstu áramóta.

Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ekki hækkað síðan í október 2016

Lög um launafyrirkomulag þjóðkjörinna og æðstu embættismanna ríkisins voru samþykkt í júní í fyrra í kjölfar brottfalls laga um kjararáð. Þar er kveðið á um að laun skuli taka breytingum 1. júlí ár hvert, annars vegar í samræmi við launavísitölu Hagstofunnar vegna almenna og opinbera markaðarins, og þróun launa skv. lögum hins vegar. Samkvæmt lögunum hefðu laun þessara hópa átt að hækka 1. júlí í fyrra en Alþingi samþykkti að fresta því um 6 mánuði í tengslum við gerð lífskjarasamninga. Tók sú hækkun því gildi 1. janúar 2020, skv. lögboðnum fyrirmælum í takt við launavísitölu ársins 2018, sem segir til um um 6,3% hækkun. Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna höfðu ekki verið hækkuð síðan í október 2016. Því miður urðu á mistök við hefðbundna launaafgreiðslu í janúar sem leiddu til þess að breytingin kom ekki til framkvæmda þá eins og lögin mæla fyrir um. Úr þessu verður bætt við launakeyrslu um næstu mánaðamót.

Laun þjóðkjörinna fulltrúa, ráðherra og ráðuneytisstjóra eru eftirfarandi

 

Fjárhæð frá 2016

Fjárhæð frá 1. janúar 2020

Forseti Íslands

2.985.000

3.173.055

Þingfararkaup

1.101.194

1.170.569

Forsætisráðherra

2.021.825

2.149.200

Ráðherrar

1.826.273

1.941.328

Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis

1.817.693

1.932.203

Ráðuneytisstjórar

1.725.480

1.834.181

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum