Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2020 Forsætisráðuneytið

Fundir með forsætisráðherra Svíþjóðar og jafnréttisráðherra Austurríkis

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og  Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og  Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, áttu símafund um baráttuna gegn COVID-19  í dag.

Þau ræddu þær efnahagslegu ráðstafanir sem löndin hafa gripið til að undanförnu og framtíðarhorfur í efnhagsmálum. Einnig um mikilvægi norrænnar samvinnu á krefjandi tímum og nauðsyn þess að Norðurlöndin eigi gott samstarfum næstu skref í viðureigninni gegn faraldrinum. Þá ræddu þau einnig stöðuna í evrópsku samstarfi.

Katrín og Stefan ræddu saman síðast fyrir um mánuði en hún hefur á undanförnum vikum átt síma- eða fjarfundi með öllum forsætisráðherrum Norðurlandanna þar sem bornar hafa verið saman bækur í baráttunni við COVID-19 og ræddar aðgerðir til efnahagslegrar viðspyrnu.

Þá fundaði Katrín einnig símleiðis með Dr. Susanne Raab, jafnréttisráðherra Austurríkis, um áhrif heimsfaraldursins á stöðu jafnréttismála en Ísland hefur átt gott samstarf við Austurríki á því sviði.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
5. Jafnrétti kynjanna
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum