Hoppa yfir valmynd
12. maí 2020 Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Sýnataka á Keflavíkurflugvelli

Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands á blaðamannafundi - mynd

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að því að eigi síðar en 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví. Þá er gert ráð fyrir að nýleg vottorð um sýnatöku erlendis verði einnig tekin til greina meti sóttvarnalæknir þau áreiðanleg. Þessi tímasetning er með fyrirvara um að áætlanir um afléttingu takmarkana innanlands gangi eftir og með hliðsjón af þróun faraldursins hérlendis og erlendis.

Fyrirhugað er að veirufræðideild Landspítala annist sýnatöku á Keflavíkurflugvelli og greiningu. Niðurstaða á að geta legið fyrir samdægurs og er gert ráð fyrir að farþegar geti farið til síns heima eða á gististað uns hún liggur fyrir.

Fyrirkomulagið verður endurmetið þegar tveggja vikna reynsla er komin á það, m.a. út frá því hvort herða þurfi aftur aðgerðir eða hvort frekari tilslakanir séu forsvaranlegar. Ef skimun á Keflavíkurflugvelli reynist vel þarf einnig að huga að fyrirkomulagi á öðrum landamærastöðvum.

Skýrsla stýrihóps um afléttingu ferðatakmarkana

  • Sýnataka á Keflavíkurflugvelli - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum