Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Inspired by Iceland: Bjóða fólki um allan heim að losa um streitu á Íslandi

Inspired by Iceland býður fólki um allan heim að losa um uppsafnaða streitu vegna Covid-19 með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi. Hátölurum hefur verið komið fyrir víðs vegar um landið en hægt er að taka öskrin upp með aðstoð tölvu eða síma á vefsíðunni www.lookslikeyouneediceland.is næstu tvær vikur.

„Það er spennandi að geta boðið fólki að upplifa Ísland með þessum hætti. Ég held að við þurfum öll að losa um streitu eftir undanfarna mánuði, og Ísland hefur allt til að bjóða fyrir fólk sem þarf á endurnærandi upplifun að halda. Hvort sem það er stafræn heimsókn til að losa um streitu eða raunveruleg heimsókn í afslappað frí,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ísland – saman í sókn, sem heyrir undir efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19 og er fjármagnað af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Um er að ræða markaðs- og kynningarverkefni fyrir áfangastaðinn Ísland á völdum erlendum mörkuðum í því skyni að styrkja ímynd Íslands, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu. Framkvæmd verkefnisins er í höndum Íslandsstofu, og aðgerðir á vegum verkefnisins fara fram undir merkjum Inspired by Iceland sem er vörumerki íslenskrar ferðaþjónustu. 

Sjö hátalarar koma öskrunum til skila

Það verða sjö hátalarar sem koma öskrunum til skila á Íslandi og getur fólk valið um staðsetningu. Hátalararnir eru staðsettir í Viðey í Reykjavík, Festarfjall við Grindavík, í nágrenni Skógarfoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum. Notendur fá svo að lokum myndbandsupptöku af því þegar öskrið þeirra „glymur“ á Íslandi. Íslendingar þurfa þó ekki að óttast að gremjuöskur útlendinga skemmi sumarfrí þeirra þar sem hljóðstyrknum er stillt í hóf.

Losaðu þig við það

Herferðin sem hefur hlotið nafnið „Let It Out“ eða „Losaðu þig við það“ sækir innblástur til kenninga sálfræðinga um streitulosandi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum. Í könnun sem framkvæmd var á erlendum mörkuðum fyrir Inspired by Iceland í byrjun júní sögðust 40% aðspurðra finna fyrir streitueinkennum vegna Covid-19, og 37% svöruðu að ástandið hefði haft neikvæð áhrif á sálartetrið. Langvinn innivera, einsemd, endalausir fjarfundir og röskun á daglegu lífi hefur aukið streitu fólks m.a. takmarkanir á ferðalögum milli landa. Herferðinni er ætlað að draga fram kosti Íslands sem áfangastaðar.

 „Við viljum vekja athygli tilvonandi ferðamanna á að það er tiltölulega öruggt að ferðast til Íslands og að hér er hægt að upplifa fallega náttúru í fámenni, en það er eitthvað sem við teljum að fólk muni sækjast eftir þegar áhugi fólks á að ferðast kviknar á ný. Það er mikilvægt að vekja athygli á kostum Íslands núna. Fólk er að láta sig dreyma um þá tíma þegar það verður hægt að ferðast aftur og jafnvel leggja á ráðin um ferðalög í náinni framtíð. Við viljum vera hluti af því samtali. Streitulosun er viðeigandi við þessar kringumstæður en gefur okkur jafnframt tækifæri á sama tíma til að sýna landið og minna á kosti Íslands,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Fylgist með Inspired by Iceland hér:

Inspired By Icelandwww.inspiredbyiceland.com

Youtube - www.youtube.com/user/inspiredbyiceland

Facebook – www.facebook.com/inspiredbyiceland

Twitter - @iceland

Instagram – Inspiredbyiceland

 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum