Hoppa yfir valmynd
8. október 2020 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Þriðji samningur Evrópusambandsins um bóluefni í höfn

Evrópusambandið hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Janssen Pharmaceutica NV, dótturfyrirtæki Johnson Johnson, um kaup á bóluefni gegn COVID-19. Samningurinn felur í sér að strax og prófunum er lokið og niðurstöður sýna að bóluefnið er öruggt og með fullnægjandi virkni er aðildarríkjum sambandsins tryggður réttur til kaupa á bóluefni fyrir 200 milljónir manna. Eins og áður hefur komið fram munu Ísland og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins njóta sama aðgangs að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og önnur ríki sambandsins.

Samningurinn við Janssen er þriðji samningurinn sem Evrópusambandið gerir við lyfjafyrirtæki um kaup á bóluefni við COVID-19. Áður var búið að semja við fyrirtækið AstraZeneca og Sanofi-GSK. Evrópusambandið á einnig í viðræðum við þrjú önnur fyrirtæki um bóluefnakaup; CureVac, BioNTech-Pfizer og Moderna.

200 milljón viðbótarskammtar

Samningurinn við Janssen felur einnig í sér heimild til kaupa á bóluefnum fyrir allt að 200 milljónir manna til viðbótar. Horft er til þess að aðildarríkin geti lagt lágtekjuríkjum til bóluefni, auk heimildar til að framselja bóluefni til annarra Evrópuríkja.

Í tilkynningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem birt var í gær er haft eftir framkvæmdastjóra stofnunar Evrópusambandsins um heilbrigðis- og matvælaöryggi að samningurinn sé mikilvægt skref í átt að því að finna öfluga vörn gegn veirunni og að fleiri samninga sé að vænta.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum