Hoppa yfir valmynd
18. desember 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefnt að sölu eignarhluta í Íslandsbanka á vormánuðum

Merki Íslandsbanka - mynd

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við ákvæði laga. Að liðnum umsagnarfresti tekur ráðherra endanlega ákvörðun um hvort sölumeðferð skuli hafin, en miðað er við að honum ljúki um 20. janúar nk.

Stefnt er að því að selja hlutina í almennu útboði og skrá öll hlutabréf í bankanum í kjölfarið á skipulegan verðbréfamarkað á Íslandi. Áformin eru í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, en Íslandsbanki er í dag alfarið í eigu ríkisins.

Helstu markmið með sölu ríkisins á hlutum þess í bankanum eru eftirfarandi:

  • að minnka áhættu ríkisins af svo stórum eignarhlut í fjármálakerfinu;
  • að efla virka samkeppni á fjármálamarkaði;
  • að hámarka endurheimtur ríkissjóðs af eignarhaldinu og sölu á hlutum;
  • að stuðla að fjölbreyttu, heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi til lengri tíma;
  • að auka fjárfestingarmöguleika fyrir innlenda einstaklinga og fagfjárfesta; og ekki síst
  • að minnka skuldsetningu eða auka svigrúm ríkisins til samfélagslega arðbærra fjárfestinga.

Rétt þykir að undirbúa söluferli á þessum tímapunkti í ljósi góðrar stöðu bankans og hagfelldra aðstæðna á markaði. Eigið fé Íslandsbanka er nú metið á um 182 ma.kr., en í minnisblaði Bankasýslu ríkisins er lagt til að tekin verði ákvörðun um stærð hlutarins sem boðinn verður til sölu á síðari stigum söluferlis, með hliðsjón af áætlaðri eftirspurn. Stefnt er að því að útboð geti farið fram á vormánuðum, en málið hefur fengið ítarlega umfjöllun í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins og var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Rétti tíminn til að selja

Lengi hefur verið talið mikilvægt að draga úr áhættu ríkisins í rekstri fjármálafyrirtækja með því að minnka eignarhald þess í bankakerfinu, sem í dag er það umfangsmesta í Evrópu. Með því að draga úr eignarhaldi ríkisins er jafnframt stuðlað að aukinni samkeppni og áframhaldandi áhersla lögð á traust, heilbrigt og hagkvæmt bankakerfi fyrir samfélagið. Áfram er gert ráð fyrir að ríkið verði leiðandi fjárfestir í Landsbankanum til framtíðar.

Þróun á fjármálamörkuðum og afkomu bankans undanfarna mánuði styður við tillögu um að hefja sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þannig hefur vísitala aðallista Kauphallar Íslands hækkað um 50% frá miðjum mars og hlutabréf í evrópskum bönkum hækkað um þriðjung á sama tíma. Enn fremur er hlutfall eigin fjár bankans hátt og arðsemi byggist nú á reglulegri starfsemi fremur en óreglulegum liðum.

Enn fremur má líta til þess að með söluferlinu fjölgar fjárfestingarkostum á markaði, en undanfarna mánuði hafa farið fram farsæl hlutabréfaútboð innanlands með mikilli þátttöku almennings.

„Í þessu samhengi má einnig líta til gengis bréfa í Arion banka, en bréf í bankanum hafa hækkað umfram innlenda hlutabréfamarkaðinn á árinu og er gengi þeirra um þessar mundir með því hæsta sem verið hefur frá skráningu á markað sumarið 2018. Það gefur óneitanlega góð fyrirheit“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Tímasetningin er einnig hagfelld með tilliti til þess að mæta efnahagslegum áhrifum kórónuveirunnar. Þannig hafa stjórnvöld undanfarna mánuði ráðist í tugmilljarða aðgerðir sem felast bæði í beinum stuðningi, skattalegum aðgerðum og opinberum fjárfestingum.

Við það bætist umtalsverður samdráttur í skatttekjum, en gert er ráð fyrir um 320 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs árið 2021.

„Með sölunni mildum við höggið af kórónukreppunni umtalsvert auk þess sem hún auðveldar okkur að fjármagna áframhaldandi aðgerðir fyrir fólk og fyrirtæki“ segir Bjarni.

Endanleg ákvörðun að loknum umsagnarfresti

Um ferlið gilda lög nr. 155/2012 um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Samkvæmt lögunum ber ráðherra að leggja greinargerð fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um helstu atriði sem snúa að fyrirhugaðri sölumeðferð. Jafnframt skal leita umsagnar Seðlabanka Íslands. Að loknum hæfilegum umsagnarfresti tekur ráðherra ákvörðun um hvort sölumeðferð verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar.

Á meðfylgjandi myndum má sjá ferlið og áætlaða tímalínu þess með hliðsjón af ákvæðum laganna. 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum