Hoppa yfir valmynd
28. desember 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Lækkun komugjalda í heilsugæslu og fleiri breytingar um áramót

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Almenn komugjöld í heilsugæslu lækka úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar næstkomandi og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Fellt verður niður sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð en þeir eru skráðir hjá. Heilsugæslan um allt land tekur um áramót við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi. Gjald fyrir leghálsstrok lækkar þá úr 4.818 krónum í 500 krónur.

Gjaldskrárlækkanirnar eru liður í áætlun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga. Áætlaður kostnaður vegna framangreindra breytinga nemur um 135 milljónum króna á ári.

Fleiri breytingar verða hjá heilsugæslunni. Þar verður komið á fót sérstökum heilsueflandi námskeiðum fyrir konur í yfirvigt og einnig námskeiðum til að bæta tilfinningalega líðan á meðgöngu. Heilsugæslan mun enn fremur frá áramótum gefa út gjaldfrjáls vottorð fyrir starfshæfnismat sem er forsenda fyrir umsókn um starfsendurhæfingu hjá VIRK.

Hætt verður að krefjast tilvísunar frá heimilis- eða heilsugæslulækni fyrir börn sem fara í rannsókn í beinu framhaldi af komu á slysadeild eða á bráðamóttöku sjúkrahúsa og gjöld fyrir þessar komur falla niður. Sama máli gegnir ef börn fara til sérfræðings á göngudeild eða dagdeild sjúkrahúsa í beinu framhaldi af komu á slysadeild eða bráðamóttöku.

Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri taka frá áramótum við framkvæmd skimana fyrir krabbameini í brjóstum. Gjald fyrir brjóstaskimun hækkar um 2,7% en sú breyting verður jafnframt gerð að gjaldið verður fellt inn í afsláttarkerfi sjúkratrygginga.

Almennt munu gjöld fyrir opinbera heilbrigðisþjónustu hækka um 2,7% í samræmi við verðbólguspá samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands frá 1. október síðastliðnum.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum