Hoppa yfir valmynd
8. maí 2021 Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ísland gefur öndunarvélar til Indlands

Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands. Öndunarvélarnar eru gjöf frá Landspítala og verða þær fluttar, með milligöngu heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, á vegum almannavarna Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samstarfsins. Gert er ráð fyrir að vélarnar verði sendar á næstu dögum. Samhæfingar- og stjórnstöð almannavarna ESB (ERCC) mun tryggja að vélarnar komist á áfangastað og í hendur fagaðila. Með þessum hætti er gengið úr skugga um að gjöfin nýtist sem skyldi og komi að gagni í baráttunni við faraldurinn sem nú geisar á Indlandi.

Þessar öndunarvélar eru hluti af stórri gjöf sem Landspítala fékk í fyrra frá rausnarlegu velvildarfólki spítalans. Þá var algjör óvissa um þörfina hér á landi fyrir öndunarvélar, en hún var metin mikil þá og vélarnar virkilega vel þegnar. Nú er ljóst að ekki er þörf fyrir allar öndunarvélarnar sem Landspítali hlaut að gjöf og því taldi spítalinn rétt að þær nýttust fólki í neyð annars staðar. Landspítali heldur eftir þeim vélum sem talið er nauðsynlegt til að tryggja öryggi landsins.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum