Hoppa yfir valmynd
4. júní 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Umfang stærstu aðgerða vegna heimsfaraldurs 95 milljarðar króna

Umfang stærstu stuðningsaðgerða ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru er nú ríflega 95 milljarðar króna. Hlutabætur eru þar umfangsmestar en næst kemur frestun skattgreiðslna, stuðnings- og viðbótarlán, greiðsla launa á uppsagnarfresti, tekjufalls-, viðspyrnu og lokunarstyrkir. Undanfarna mánuði hafa rúmir 15 milljarðar króna verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki.

Auk þessa hafa yfir 27 milljarðar króna verið greiddir út af séreignarsparnaði en heimild til úttektar hans gildir út árið. Þá hafa um 7,7 milljarðar króna verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti, mest vegna nýbyggingar og viðhalds húsnæðis, eða um 5,5 milljarðar króna.

 
Í maí samþykkti Alþingi frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra sem ætlað er að styðja einstaklinga og rekstraraðila á lokametrum baráttunnar við heimsfaraldurinn. Þau fela í sér framhald og rýmkun viðspyrnu- og lokunarstyrkja, framlengda heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar, sérstakan barnabótaauka og fleiri aðgerðir til verndar og viðspyrnu vegna heimsfaraldursins.

 

Um mánaðamótin rann út ferðagjöf I sem gilti síðasta árið sem og frestur til að sækja um stuðningslán og hlutabætur. Ýmsar aðgerðir sem styðja viðspyrnu eru virkar og má þar nefna viðspyrnustyrki, ráðningarstyrki og nýja ferðagjöf sem tók gildi 1. júní og gildir út september.


 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum