Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Kallað eftir bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

Vegna mikillar fjölgunar greindra smita af COVID-19 á undanförnum dögum hefur verið ákveðið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Því er enn á ný óskað eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort sem er í fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Þau sem voru skráð í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru vinsamlega beðin um að skrá sig þar á ný. 

Fyrirkomulag varðandi bakvarðasveitina er eins og áður. Opinberar heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Þær munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa. Stofnanirnar sem um ræðir eru: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri.

Jafnframt er athygli vakin á bakvarðasveit velferðarþjónustunnar og tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um skráningu í hana.

 

Spurt og svarað um bakvarðasveitina:

Eftir hverjum er óskað í bakvarðasveitina?

Heilbrigðisstarfsfólki úr hópi þeirra löggiltu heilbrigðisstétta sem taldar eru undir lið 6 í skráningarforminu, sjá hér.

Til hve langs tíma?

Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig tímabundið í allt að tvo mánuði, hvort sem um er að ræða fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu.

Hver eru launin?

Laun taka mið af kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa?

Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum. Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði kjarasamninga við ríkið.  

Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina?

Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í þessu skyni, sjá hér.

Hvernig verður staðið að ráðningunni?

Þær heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum