Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID 19: Bólusetningar 12-15 ára barna hefjast í ágúst

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur fengið markaðsleyfi til notkunar fyrir börn á þessum aldri. Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september.

Á höfuðborgarsvæðinu fer bólusetning barna fram í Laugardagshöll dagana 23. og 24. ágúst. Upplýsingar þess efnis verða sendar öllum skólastjórnendum. Foreldrar sem þiggja bólusetningu fyrir börn sín verða beðnir um að fylgja börnum sínum í bólusetningu og veita þar með upplýst samþykki fyrir bólusetningunni ásamt því að vera börnunum til halds og trausts. Heilsugæslustöðvar í öðrum heilbrigðisumdæmum eru að skipuleggja framkvæmd bólusetningar með svipuðum hætti og á höfuðborgarsvæðinu.

Embætti landlæknis mun birta nánari upplýsingar varðandi bólusetningar barna og heilsugæslustöðvar í hverju heilbrigðisumdæmi munu birta upplýsingar og auglýsa fyrirkomulag bólusetninga og tímasetningar á hverjum stað.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum