Hoppa yfir valmynd
28. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hvatt til skráningar í bakvarðasveit

Félagsmálaráðuneytið hvetur fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveitar velferðarþjónustunnar. Velferðarþjónustan sinnir þjónustu við viðkvæma hópa og mikilvægt er að hún falli ekki niður þrátt fyrir það ástand sem nú ríkir. Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa og börn með sértækar stuðningsþarfir. Óskað er sérstaklega eftir fólki með reynslu og menntun í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Félagsmálaráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu, hlutastarf eða fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni. 

Athugið að einnig er starfandi sérstök bakvarðasveit fyrir heilbrigðisþjónustu, sjá hér.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ráðninga

  • Tímabil: Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig í allt að tvo mánuði.
  • Laun: Laun taka mið af kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og þess sveitarfélags eða stofnunar sem um ræðir hverju sinni. 
  • Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa: Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum.Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði viðeigandi kjarasamninga.
  • Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina: Skráning í bakvarðasveit.  
  • Hvernig verður staðið að ráðningum:  Þau sveitarfélög sem óska eftir að ráða starfsfólk úr bakvarðarsveit velferðarþjónustunnar nálgast upplýsingar um liðsauka hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    • Félagasamtök, NPA þjónustuþegar og aðrir leita til viðkomandi sveitarfélags óski þeir liðsinnis bakvarðasveitar. 
  • Ef hjúkrunarheimili þarfnast liðsauka vegna COVID-19 er þeim bent á að hafa samband við félagsmálaráðuneytið í síma 545-8100 eða með því að senda póst á [email protected].
  • Stofnanir munu sjálfar hafa samband við bakverði og ráðningarsambandið verður á milli einstaklingsins og viðkomandi stofnunar eða sveitarfélags eftir því sem við á hverju sinni.

Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] ef þú þarfnast aðstoðar vegna Covid-19.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum