Hoppa yfir valmynd
30. desember 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Einangrun stytt í 7 daga - reglur um styttri tíma

Í samráði við sóttvarnalækni hefur heilbrigðisráðherra gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021. Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með COVID-19 þannig stytt í 7 daga. Telji læknar COVID-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

„Við sjáum gríðarlegt álag á heilbrigðisstofnunum vegna mikilla smita í samfélaginu, sérstaklega er álagið mikið á Covid-göngudeild Landspítalans. Við sjáum líka víðtæk áhrif smita á samfélagið allt og því tel ég þetta vera rétt skref. Ég hvet fólk til þess að halda áfram að fara varlega, og sýna starfsfólki Covid-göngudeildar áfram þolinmæði og virðingu. Við erum öll í þessu saman.“ Segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Reglugerðarbreytingin tekur nú þegar gildi og getur bæði haft áhrif á lengd einangrunar hjá einstaklingum sem greindust með COVID-19 fyrir gildistöku, sem og eftir gildistöku. Reglugerðin mun birtast síðar í dag á vef Stjórnartíðinda. 

Minnisblað sóttvarnalæknis varðandi ný tilmæli um einangrun og sóttkví vegna COVID-19

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1240/2021 um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum