Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2022 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun

COVID-19: Tilkynning varðandi útskrift að lokinni einangrun - myndMynd: Þorkell/Landspítali

Athygli er vakin á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdómseinkennum. Covid-göngudeild Landspítala hefur alla jafna samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eftir skilaboðum frá Covid-göngudeildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu uppfyllt. Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur jákvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrunar. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum