Hoppa yfir valmynd

Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir

Núgildandi siðareglur ráðherra voru samþykktar í ríkisstjórn Íslands í mars 2025. Um siðareglur ráðherra er fjallað í VI. kafla laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. 

Sjá einnig Handbók um siðareglur ráðherra sem samin var af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið. Í handbókinni eru settar fram skýringar á siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra.

Siðareglur ráðherra

Inngangur.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt meðfylgjandi siðareglur ráð­herra, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Siðareglurnar veita leiðsögn um það hvers konar framganga hæfir svo veigamiklu embætti en jafnframt gefa þær almenningi færi á að bera háttsemi ráðherra saman við skráðar og útgefnar reglur. Þeim er ætlað að stuðla að trausti almennings á stjórnsýslunni.

Hver og einn ráðherra gætir að því fyrir sitt leyti að farið sé eftir reglunum. Ráðherra getur í vafatilvikum leitað ráðgjafar hjá forsætisráðuneytinu, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 115/2011.

Þeir sem telja ráðherra hafa brotið gegn siðareglunum geta komið ábendingum um það á framfæri við umboðsmann Alþingis en hann gætir þess meðal annars að stjórnsýslan fari fram í samræmi við siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnar­ráð Íslands, sbr. 1. mgr 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Telji einhver að brot á siðareglum hafi jafn­framt falið í sér að hann sjálfur hafi verið beittur rangsleitni er unnt að bera fram kvörtun við umboðsmann Alþingis, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997.

1. gr.

Frumskyldur.

a. Ráðherra hefur almannahagsmuni ávallt að leiðarljósi í störfum sínum.

b. Ráðherra hefur í heiðri lýðræðisleg gildi, mannréttindi og meginreglur réttarríkisins.

c. Ráðherra starfar í anda gagnsæis, sannsögli, ábyrgðar og heilinda.

d. Ráðherra sinnir starfi sínu af alúð, trúmennsku og heiðarleika. Hann beitir því valdi er fylgir embættinu á grundvelli laga og stjórnarskrár af hófsemi og sanngirni og án tillits til eigin hagsmuna.

2. gr.

Hagsmunatengsl og hagsmunaárekstrar.

a. Ráðherra notfærir sér ekki stöðu sína í eiginhagsmunaskyni eða í þágu hagsmuna tengdra aðila.

b. Ráðherra forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.

c. Ráðherra upplýsir um fjárhagsleg hagsmunatengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hagsmuna­árekstrum.

d. Ráðherra hefur ekki með höndum störf eða verkefni sem ósamrýmanleg eru embætti hans.

e. Ráðherra gætir hófs í viðtöku gjafa og þiggur ekki verðmætar gjafir persónulega í krafti embættis síns. Halda skal skrá um gjafir til ráðherra og skal hún birt opinberlega.

f. Ráðherra beitir sér fyrir því innan ráðuneytis og þeirra stofnana sem undir það heyra að tekið sé á hagsmuna­árekstrum þegar þeir koma upp og hann fær vitneskju þar um. Þá skal hann beita sér fyrir því að starfsfólk sé sér meðvitað um mögulega hagsmuna­árekstra og leiðir til að koma í veg fyrir þá.

3. gr.

Meðferð fjármuna.

a. Ráðherra sýnir ráðdeild við meðferð fjármuna hins opinbera og hvetur starfsfólk ráðu­neytis síns til hins sama.

b. Ráðherra nýtir ekki opinbera fjármuni eða gæði starfsins í persónulegum eða pólitískum tilgangi nema að svo miklu leyti sem lög og reglur leyfa.

c. Ráðherra efnir ekki til móttöku fyrir hópa og samtök, sem hefur í för með sér útgjöld, nema slíkt samræmist starfsemi ráðuneytis.

4. gr.

Háttsemi og framganga.

a. Ráðherra sýnir virðingu í samskiptum og leggur sig fram um að framganga hans sé til fyrirmyndar þannig að hún styðji við hugarfar heilinda og ábyrgðar hjá stjórnvöldum og almenningi.

b. Ráðherra hefur trúverðugleika embættis síns að leiðarljósi í allri framgöngu og virðir mannréttindi og mannlega reisn í hvívetna.

5. gr.

Faglegir stjórnarhættir.

a. Ráðherra leggur sig fram um að eiga gott samstarf við samráðherra og tryggir viðeigandi samráð við þá um stjórnarmálefni.

b. Ráðherra viðhefur faglega stjórnarhætti í hvívetna. Hann sér til þess að faglega sé staðið að skipun embættismanna og annars starfsfólks og leitar faglegs mats starfsfólks ráðuneytis síns áður en ákvarðanir eru teknar um einstök mál.

c. Ráðherra virðir hlutleysi og faglegt sjálfstæði embættismanna og annarra starfsmanna.

d. Ráðherra gerir skýran greinarmun á flokkspólitísku starfi, svo sem í tengslum við kosn­ingar, og verkefnum ráðuneytis síns hverju sinni. Hann felur starfsmönnum ráðuneyta, öðrum en aðstoðar­manni, ekki verkefni sem tengjast hinu fyrrnefnda.

e. Ráðherra sér til þess að brugðist sé við ábendingum starfsmanna um siðferðilega ámælisvert eða ólögmætt athæfi í ráðuneyti hans eða á starfssviði ráðuneytisins. Hann gætir þess að starfsmenn sem benda á slíkt gjaldi ekki fyrir það.

6. gr.

Gagnsæi og upplýsingamiðlun.

a. Ráðherra viðhefur gagnsæi um störf sín og ráðuneytis síns.

b. Ráðherra leggur sig fram um að gera upplýsingar aðgengilegar í samræmi við lög og almenn viðmið og hefur frumkvæði að birtingu upplýsinga sem eru í almannaþágu. Hann beitir sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti.

c. Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra.

d. Ráðherra viðhefur virkt og skipulegt samráð við almenning og hagaðila á forsendum jafnræðis og með almannahagsmuni að leiðarljósi. Hann tryggir gagnsæi um samskipti við hagaðila.

7. gr.

Ábyrgð og eftirfylgni.

a. Ráðherra ber ábyrgð gagnvart Alþingi og almenningi á ákvörðunum sínum og breytni. Honum ber að sýna samstarfsvilja séu störf hans tekin til skoðunar af hálfu Alþingis eða eftirlitsstofnana þess og eins þegar þingmenn óska eftir upplýsingum á grundvelli laga um þingsköp.

b. Forsætisráðherra tryggir reglubundna fræðslu fyrir ráðherra um siðareglur og stuðlar að virkri samræðu um þær innan ríkisstjórnar.

8. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi siðareglur ráðherra, nr. 599/2024.

 

Forsætisráðuneytinu, 11. mars 2025

 

Kristrún Frostadóttir

Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, ber ráðherrum, aðstoðarmönnum ráðherra, ráðuneytisstjórum, skrifstofustjórum og sendiherrum að tilkynna forsætisráðuneytinu um tiltekna hagsmuni sína, skuldir og ábyrgðir, auk sömu upplýsinga fyrir maka og ólögráða börn.

Forsætisráðuneytið birtir upplýsingarnar opinberlega að hluta, þ.e. um hagsmuni ráðherra, aðstoðarmanna ráðherra og ráðuneytisstjóra. 

Forsætisráðuneytið mælist til þess að hagsmunaskráningin sé yfirfarin og uppfærð í lok aprílmánaðar ár hvert. Þó ber að tilkynna jafnóðum ef umtalsverðar breytingar verða á þeim upplýsingum sem fram koma í hagsmunaskráningu.

Leiðbeiningar vegna hagsmunaskráningar

Forsætisráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið

Dómsmálaráðuneytið

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið

Innviðaráðuneytið

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, ber ráðherrum, aðstoðarmönnum ráðherra, ráðuneytisstjórum, skrifstofustjórum og sendiherrum að tilkynna forsætisráðuneytinu um tiltekna hagsmuni sína, skuldir og ábyrgðir, auk sömu upplýsinga fyrir maka og ólögráða börn.

Forsætisráðuneytið birtir upplýsingarnar opinberlega að hluta, þ.e. um hagsmuni ráðherra, aðstoðarmanna ráðherra og ráðuneytisstjóra.

 

Aukastörf

  • Lárus M. K. Ólafsson, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
    Prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 29. janúar 2025.
  • Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
    Körfuknattleiksþjálfari hjá yngri flokkum Breiðabliks. Heimild veitt 29. janúar 2025.
  • Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnar.
    Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans (heimilt að taka að sér tilfallandi vaktir). Heimild veitt 11. febrúar 2025.
  • Anna Rut Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður ríkisstjórnar.
    Kennsla við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 11. febrúar 2025.
  • Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.
    Kennsla og umsjón með námskeiði við læknadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 11. febrúar 2025.
  • Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
    Leiðbeinandi við meistararitgerð og kennsla við lagadeild Háskóla Íslands. Heimild veitt 4. mars 2025.
  • Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
    Kennsla við Háskólann í Reykjavík. Heimild veitt 13. mars 2025.

Kristrún Frostadóttir

Inga Sæland

Logi Einarsson

Eyjólfur Ármannsson

Alma D. Möller

Guðmundur Ingi Kristinsson

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Hanna Katrín Friðriksson

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

Jóhann Páll Jóhannsson

Daði Már Kristófersson

Samkvæmt lögum nr. 64/2020, um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, er hagsmunavörðum, þ.e. einstaklingum sem tala máli einkaaðila gagnvart stjórnvöldum og leitast við að hafa áhrif á störf þeirra í atvinnuskyni, skylt að tilkynna forsætisráðuneytinu um sig og hlutverk sitt. Lögaðilum og fyrirtækjum er heimilt að senda tilkynningu um þá einstaklinga sem sinna hagsmunagæslu í umboði þeirra.

Leiðbeiningar um samskipti við hagsmunaverði.

  • María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins í 100% starfi og það ótímabundið.
    Starfstöð: Borgartún 35, 105 Reykjavík.


  • Bílgreinasambandið er samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum.
    Félagatal: https://www.bgs.is/is/um-bgs/felagsmenn/felagatal.
    Í Bílgreinasambandinu er fjöldi fyrirtækja þ.e. almenn bílaverkstæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingarverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutaslar og aðrir þjónustuaðilar í bílgreininni.
  • Hlutverk:
    1. Að vera í málsvari fyrir sambandsaðila um málefni bílgreinarinnar gagnvart öllum opinberum aðilum, samtökum, framleiðendum, öðrum viðskiptamönnum og almenningi.
    2. Að efla og þróa bílgreinina á Íslandi, með því að: a) halda utan um stefnumörkun í málefnum bílgreinarinnar b) vinna að eflingu menntunar til aukinnar þekkingar innan bílgreinarinnar c) vinna að eflingu faglegra vinnubragða inna bílgreinarinnar d) vinna að því að viðhafðir séu réttmætir viðskiptahættir innan bílgreinarinnar e) vera í forsvari fyrir bílgreinina við gerð kjarasamninga sem stuðli að gagnkvæmum hag samningsaðila f) að stofna til, skipuleggja og halda sýningar á bifreiðum, hlutum tengdum þeim og iðnaðinum í heild
    3. Að vera sambandsaðilum leiðbeinandi um gildi faglegra vinnubragða til aukinnar hagkvæmni og arðsemi í rekstri sambandsaðila.
    4. Vinna að umhverfisvernd og stuðla að bættri umferðarmenningu og auknu umferðaröryggi.
    5. Að láta til sín taka öll málefni sem hafa almenna þýðingu fyrir sambandsaðila og eflingu bílgreinarinnar í landinu.
  • Bílgreinasambandið er í forsvari atvinnulífsins í menntunarmálum bílgreina, skipar m.a. í prófnefndir og fræðslunefndir í bílgreinum.
  • Bílgreinasambandið er í forsvari fyrir atvinnulífið í kjarasamningum bílgreinarinnar.

 

  • Trausti Hjálmarsson
    Stjórnarformaður Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
    Stjórnarformaður er kosinn á tveggja ára fresti, nú síðast 2024. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.

  • Margrét Ágústa Sigurðardóttir
    Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
    Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hennar hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.
  • Hilmar Vilberg Gylfason
    Lögfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
    Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.

  • Harpa Ólafsdóttir
    Hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
    Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hans hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.

  • Katrín Pétursdóttir
    Lögfræðingur Bændasamtaka Íslands, Borgartúni 25.
    Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hennar hlutverk að vera málsvari bænda og fyrirtækja í landbúnaði.

Félag atvinnurekenda gætir hagsmuna stórra sem smárra aðildarfyrirtækja með því að vera einarður talsmaður viðskiptafrelsis og heilbrigðrar samkeppni. Í félaginu eru fyrirtæki úr ýmsum geirum atvinnulífsins, s.s. innflutningi, útflutningi, lyfjaframleiðslu, auglýsinga- og markaðsmálum, sjávarútvegi, fræðslu og þjálfun, fjarskiptaþjónustu, flutningum, ferðaþjónustu o.fl. Félagið rekur fjögur millilandaviðskiptaráð; Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Íslensk-taílenska viðskiptaráðið og Íslensk-evrópska verslunarráðið.

Starfsmenn sem sinna hagsmunagæzlu á vegum félagsins:

  • Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri,  starfsstöð í Kringlunni 7
  • Guðný Hjaltadóttir lögmaður, starfsstöð í Kringlunni 7
  • Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður, starfsstöð hjá MAGNA lögmönnum, Höfðabakka 9
  • Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri

Jakob Falur er í fullu starfi fyrir samtökin og hefur starfsstöð á skrifstofu Frumtaka að Borgartúni 35, 105 Reykjavík, og kemur fram fyrir hönd samtakanna.

  • Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu (FHG) er sameiginlegur vettvangur þeirra sem stunda hótel- og gistiþjónustu á Íslandi. Markmið samtakanna er m.a. að stuðla að því að atvinnugreinin búi ávallt við heilbrigt rekstrarumhverfi sem tekur mið af því samkeppnisumhverfi sem gistiþjónusta býr við hverju sinni, innanlands jafnt sem erlendis.

  • Formaður:  Kristófer Oliversson

  • Varaformaður: Gyða Árný Helgadóttir

     




     
  • Guðmundur Ásgeirsson
    Hlutverk: Formaður stjórnar. Opinber talsmaður samtakanna.
    Starfið er ólaunað sjálfboðaliðastarf og viðvarandi milli árlegra aðalfunda samtakanna.

  • Sigríður Örlygsdóttir
    Hlutverk: Varaformaður stjórnar. Staðgengill formanns.
    Starfið er ólaunað sjálfboðaliðastarf og viðvarandi milli árlegra aðalfunda samtakanna.

  • Starfsstöð og lögheimili samtakanna er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Jafnframt er hagsmunagæslu á
    vegum samtakanna að miklu leyti sinnt utan fastrar starfsstöðvar.
  • Landssamband smábátaeigenda (LS) er samband félaga og svæðisfélaga smábátaeigenda á Íslandi.  Aðildarfélög eru 15.

     Samkvæmt 2. grein samþykkta félagsins er tilgangur þess að tryggja sameiginlega hagsmuni smábátaeigenda á öllum sviðum, vera opinber málsvari þeirra og stuðla að framförum á sviði fiskveiða, vöruvöndunar, öryggis- og tryggingamála og annarra mála er þá varða.

     Þá skal félagið sérstaklega vera málsvari félagsmanna, svæðisfélaga og undirfélaga þeirra gagnvart stjórnvöldum og stjórnvaldsaðgerðum er lúta að fiskveiðum, öryggismálum, tryggingamálum, málefnum vöruvöndunar og eftirlits og félagslegum réttindum.

     Til að tryggt sé að LS geti fylgt eftir þessum markmiðum er formanni og framkvæmdastjóra heimilt, að fengnu samþykki stjórnar, að höfða hvers konar dómsmál á framangreindum sviðum í nafni LS til þess að gæta hagsmuna svæðisfélaga, undirfélaga innan svæðisfélaga, félagsmanna og einstakra félagsmanna.

    Heimild þessi nær einnig til að áfrýja dómi til Hæstaréttar Íslands og þeirra dómstóla erlendis er fjalla um mannréttindamál.

     

    Samþykktir LS

     

    Arthur Bogason, formaður LS

    Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS

    Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir LS.

    Starfsstöð og lögheimili LS er að Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Landssamband ungmennafélaga (LUF) er samstarfs- og samráðsvettvangur frjálsra ungmennafélaga og veitir stjórnvöldum ráðgjöf og aðhald í málefnum ungs fólks.

LUF starfar sjálfstætt óháð pólitískum, trúarlegum eða efnahagslegum þrýstingi. LUF vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum ungs fólks og frjálsra ungmennafélaga. LUF er málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og alþjóðlegum stofnunum og hefur heimild til aðgerða, m.a. málshöfðunar, til verndar heildarhagsmunum ungs fólks.

LUF vinnur að því að efla ungmennastarf og umræðu um málefni ungs fólks á Íslandi og er fulltrúi aðildarfélaga í margvíslegu erlendu samstarfi.

Starfsstöð félagsins er á Laugavegi 176, 105 Reykjavík. 

Hagsmunaverðir sem starfa í umboði Landssambands ungmennafélaga (LUF):

  •  Geir Finnsson, forseti LUF.

Forseti LUF er kjörinn á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Forseti kemur fram fyrir hönd félagsins út á við. Starfið er tilfallandi sjálfboðastarf til ársins 2024.

  •  Eva Brá Önnudóttir, varaforseti LUF.

Varaforseti LUF er kjörinn á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Varaforseti kemur fram fyrir hönd félagsins í fjarveru forseta. Starfið er tilfallandi sjálfboðastarf til ársins 2024.

  •  Tinna Isebarn, framkvæmdastjóri LUF.

Framkvæmdastjóri LUF er ráðinn ótímabundið. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Starfið er viðvarandi.

  •  Sigurður Helgi Birgisson, lögmaður LUF.

Lögmaður LUF er ráðinn ótímabundið. Lögmaður félagsins annast hagsmunagæslu félagsmanna og aðildarfélaga. Starfið er viðvarandi.

  •  Viktor Ingi Lorange, verkefna- og samskiptastjóri LUF.

Verkefna- og samskiptastjóri LUF er ráðinn ótímabundið. Starfið er viðvarandi. 

  • Landssamtök skógareigenda eru aðildarfélag Bændasamtaka Íslands.
  • Tilgangur Landssamtaka skógareigenda er:
    1. Að sameina alla skógarbændur landsins í ein búgreinasamtök.
    2. Að bæta aðstöðu skógræktar sem atvinnugreinar í sem víðustum skilningi, bændastéttinni til hagsbóta.
    3. Að vera samtök og málsvari þeirra sem stunda skógrækt á bújörðum.
    4. Að annast samskipti og samningagerð fyrir hönd félagsmanna við opinbera aðila eða aðra þá sem þeir óska. Einnig við hliðstæð samtök erlendis.
    5. Að hvetja til rannsókna og fræðslu atvinnugreininni til hagsbóta.
    6. Að leita leiða til að koma afurðum skógarins í verð.


  • Stjórnarmenn eru kjörnir á árlegum aðalfundi sem haldinn skal fyrir 1. Nóvember ár hvert til eins árs í senn. Stjórn ræður framkvæmdastjóra sem annast umsjón með daglegum rekstri og heldur á prókúru. Framkvæmdastjóri er ráðinn ótímabundið. Formaður, varaformaður og gjaldkeri eru skráð sem raunverulegir eigendur.
    Félagið hefur aðsetur í Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík.


  • Stjórn:
    Jóhann Gísli Jóhannsson, formaður
    Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, varaformaður
    Guðmundur Rúnar Vífilsson, gjaldkeri
    Björn Bjarndal Jónsson, ritari
    Naomi Bos, meðstjórnandi
    Framkvæmdastjóri: Hlynur Gauti Sigurðsson
  • Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
  • Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna þroskahjálpar

Eftirtaldir aðilar sinna hagsmunagæslu Lífsvirðingar:

  • Ingrid Kuhlman, formaður stjórnar
  • Bjarni Jónsson, gjaldkeri
  • Hrefna Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
  • Steinar Harðarson, meðstjórnandi
  • Sylviane Lecoultre, meðstjórnandi                                 

Stjórnarseta og starf fyrir Lífsvirðingu er ólaunað.

  • Breki Karlsson, formaður
  • Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
     

     
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson
  •  Margrét Halldóra Arnarsdóttir
Hlutverk Samáls, Samtaka álframleiðenda á Íslandi, er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og efla upplýsingastreymi og fræðslu um áliðnaðinn. 
 
  • Guðríður Eldey Arnardóttir er framkvæmdastjóri Samáls. 
  • Samál hefur aðsetur í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. 
 
  • Samband garðyrkjubænda er aðildarfélag Bændasamtaka Íslands.

    Markmið Sambands garðyrkjubænda eru, samkvæmt 3. grein samþykkta félagsins:

    1. Að vera málsvari garðyrkjunnar og gæta hagsmuna hennar á innlendum sem erlendum vettvangi.
    2. Að stuðla að hvers konar fræðslu- og rannsóknarstarfsemi í garðyrkju.
    3. Að gæta hagsmuna félagsmanna í kjarasamningum, búvörusamningum og öðrum samningum við opinbera aðila.
    4. Að gæta þess að rekstrarumhverfi garðyrkjunnar verði sem best á hverjum tíma. 
    5. Að vera þjónustuvettvangur fyrir sameiginlega hagsmuni félagsmanna allra og einstakra hópa innan félagsins, eftir eðli máls hverju sinni.

  • Stjórnarmenn eru kjörnir á árlegum aðalfundi sem haldinn skal fyrir lok apríl, til eins árs í senn.  Stjórn ræður framkvæmdastjóra sem annast umsjón með daglegum rekstri og heldur á prókúru. Framkvæmdastjóri er ráðinn ótímabundið. Stjórn skráð sem raunverulegir eigendur.

  • Félagið hefur aðsetur í Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík.

    Stjórn:

    Axel Sæland, formaður

    Helga Ragna Pálsdóttir, varaformaður

    Óskar Kristinsson

    Sigrún Hrafnhildur Pálsdóttir

    Þórhallur Bjarnason

    Varastjórn:

    Óli Björn Finnsson

    Ragna Sigurðardóttir

    Framkvæmdastjóri:  Katrín María Andrésdóttir

  • Hagsmunaverðir Samiðnar hafa það hlutverk að koma fram fyrir hönd aðildarfélaga og deilda iðnaðarmanna sem eiga aðild að Samiðn.
  • Hilmar Harðarson, formaður stjórnar
  • Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri
  • Starfsstöð og lögheimili Samiðnar er að Stórhöfða 31, 110 Reykjavík.
  • Kristín Linda Árnadóttir, formaður Samorku
  • Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku
  • Starfsstöð Samorku er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

  • Megintilgangur Samorku er að starfrækja trúverðugan,fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi og hagsmuni orku- og veitufyrirtækja og styrkja þannig stöðu þeirra og rekstur, í þágu samfélagsins.  Samtökin hafa samskipti við stjórnvöld varðandi laga- og reglugerðarumhverfi orku- og veitufyrirtækja og veita umsagnir um mál sem snerta þau.   

    Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja um allt land.  Vegna fjölbreytileika aðildarfyrirtækjanna eru hagsmunirnir fjölbreyttir.  Starf hagsmunavarða felst í að hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfi aðildarfyrirtækja og stuðla að því að þau geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki fyrir samfélagið.

    Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir Samorku.
     



     
  • Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

  • Starfsstöð Samtaka atvinnulífsins er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

  • Hlutverk hagsmunavarða SA er að sinna hagsmunagæslu fyrir Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra sem eru Samorka – Samtök orku- og veitufyrirtækja, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Samtök iðnaðarins (SI) og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ). Yfir 2000 fjölbreytt fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra. 
     
    Vegna fjölda og fjölbreytileika aðildarfyrirtækja SA eru hagsmunirnir að baki fjölbreyttir. Starf hagsmunavarða er að meginstefnu til fólgið í að hafa mótandi áhrif á starfsumhverfi atvinnulífsins og stuðla að samkeppnishæfum og arðsömum atvinnurekstri, líkt og m.a. er tilgangur samtakanna skv. 2. gr. samþykkta þeirra. 
     
    Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir Samtök atvinnulífsins. 
     

 

 

 

  • Ágúst Elvar Bjarnason 
    Verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 

  • Baldur Arnar Sigmundsson
    Lögfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar. 

  • Gunnar Valur Sveinsson
    Verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

  • Jóhannes Þór Skúlason
    Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

     
  • Skapti Örn Ólafsson
    Upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.


  • Vilborg Helga Júlíusdóttir
    Hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar .


     
  • Starfsstöð Samtaka ferðaþjónustunnar er í Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

  • Samtök ferðaþjónustunnar – SAF - gæta hagsmuna ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Innan samtakanna starfar fjölbreyttur hópur fyrirtækja í ýmsum geirum. Auk stjórnar starfa innan SAF átta fagnefndir; afþreyinganefnd, bílaleigunefnd, flugnefnd, ferðasskrifstofunefnd, hópbifreiðanefnd, gististaðanefnd, siglingarnefnd og veitinganefnd. Allar nánari upplýsingar um SAF er að finna á heimasíðu samtakanna – www.saf.is
  • Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF

  • Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur í greiningum

  • Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur

  • Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri fjármálafræðslu

  • Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur

  • Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur 
     


  • Sjá aðildarfyrirtæki SFF: https://sff.is/um-okkur/adildarfelog/
     

Eftirtaldir aðilar eru hagsmunaverðir Samtaka fyrirtækja í landbúnaði:

  • Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL. Margrét starfar einnig sem sérfræðingur hjá Mjólkursamsölunni ehf.
  • Sigurjón R. Rafnsson, formaður SAFL. Sigurjón starfar einnig sem aðstoðarkaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.

Hlutverk hagsmunavarða Samtaka fyrirtækja í landbúnaði er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir SAFL.

  • Starfsstöð Samtaka fyrirtækja í landbúnaði er að Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.

Meðal þess sem Samtök fyrirtækja í landbúnaði fást við er:

  • Að efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar.
  • Að stuðla að hagkvæmni íslensks landbúnaðar og íslenskra landbúnaðarfyrirtækja.
  • Að vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna.
  • Að efla skilning og ímynd og stuðla að upplýstri umræðu um íslenskan landbúnað.
  • Að taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna íslensks landbúnaðar á erlendum vettvangi.
  • Að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna.
  • Að styðja við nýsköpun og menntun tengda landbúnaði.
  • Að vinna að eflingu rannsókna og sjálfbærni íslensks landbúnaðar.
  • Ólafur Marteinsson, formaður SFS
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS

  • Starfsstöð SFS er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík, Ólafur Marteinsson, formaður SFS er jafnframt framkvæmdastjóri Ramma hf. Gránugata 1-3, 580 Fjallabyggð. Hlutverk hagsmunavarðanna er viðvarandi, á meðan þeir gegna framangreindum störfum fyrir SFS.  

  • Fjölbreytt fyrirtæki í sjávarútvegi og fiskeldi eiga aðild að samtökunum. Samkvæmt samþykktum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er tilgangur samtakanna að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi með því: 

    - stuðla að hagkvæmni íslensks sjávarútvegs og íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja,
    - styðja við nýsköpun og menntun tengda sjávarútvegi,
    - efla skilning og ímynd og stuðla að upplýstri umræðu um íslenskan sjávarútveg,
    - taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna íslensks sjávarútvegs á erlendum vettvangi,
    - vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna,
    - gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna,
    - vinna að eflingu hafrannsókna og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins og
    - efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs á erlendum mörkuðum.
     

Hlutverk samtakanna er að:

  • Efla samstarf aðildarfélaga, standa vörð um hagsmuni þeirra og vinna að bættum starfsskilyrðum.
  • Stuðla að árangursríku samstarfi við heilbrigðisyfirvöld, sveitarfélög, félagasamtök og aðra þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta.
  • Koma á framfæri við stjórnvöld og almenning afstöðu samtakanna til mála er varða hagsmuni aðildarfélaga og fylgja þeim fram.
  • Gangast fyrir upplýsinga- og fræðslustarfsemi m.a. í því skyni að stuðla að framförum og hagræðingu í starfsemi og rekstri aðildarfélaga.

Þeir sem sinna hagsmunagæslu fyrir samtökin eru:

  • María Fjóla Harðardóttir

Stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Stjórnarformaður er kosinn á tveggja ára fresti, nú síðast í apríl 2022. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi (þann tíma sem hún er formaður) og er að vera málsvari fyrirtækja í velferðarþjónustu.

  • Sigurjón Norberg Kjærnested

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er að vera málsvari fyrirtækja í velferðarþjónustu. Sigurjón er talsmaður SFV og ber ábyrgð á rekstri samtakanna.

  • Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir

Aðstoðarframkvæmdastjóri og yfirlögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi og er hann staðgengill framkvæmdastjóra.

  • Karl Sigurðsson

Greinandi hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi.

  • Heiða Vignisdóttir

Lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er viðvarandi.

  • Lovísa Árnadóttir

Veitir ráðgjöf í kynningarmálum í hlutastarfi fyrir Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hlutverk hagsmunavarðar er ekki viðvarandi og er breytilegt eftir stöðu verkefna.

  • Skrifstofur SFV eru að Brúnavegi 5, 105 Reykjavík. 
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins
  • Árni Sigurjónsson, formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins
  • Starfsstöð Samtaka iðnaðarins er að Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

  • Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum iðnaðarins á öllum sviðum og í nánu samráði við þau 1400 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda sem eru innan samtakanna.

    Meðal þess sem Samtök iðnaðarins fást við er að:
    • Þjóna íslenskum iðnaði og gæta hagsmuna hans á innlendum og erlendum vettvangi
    • Hafa áhrif á stefnu stjórnvalda, fjármálastofnana, opinberra stofnana og annarra sem tengjast starfsemi iðnaðarins, með það að markmiði að íslenskum fyrirtækjum verði búin starfsaðstaða sem gerir þau samkeppnishæf á innlendum og erlendum mörkuðum, án hindrana og með arðbærum hætti.
    • Fylgjast vel með alþjóðlegri samningagerð á vegum opinberra aðila og aðstoða þá við að meta þá þætti slíkra samninga er varða hagsmuni iðnaðarins hér á landi og á erlendum mörkuðum.
    • Eiga samstarf við hliðstæð samtök erlendis og vera aðilar að alþjóðasamtökum þeirra til þess að fylgjast betur með og hafa áhrif á þróun atvinnulífs, starfsskilyrði og viðskipti á alþjóðavettvangi.
    • Leggja áherslu á að menntun starfsfólks og stjórnenda í iðnaði sé eins góð og kostur er og að hún stuðli að eðlilegri tækniþróun og falli að þörfum hans.
    • Stuðla að félagslegum, faglegum og efnahagslegum framförum í iðnaði með upplýsinga- og fræðslustarfsemi meðal sinna félaga m.a. um breytingar og túlkun á lögum og reglum sem snerta iðnaðinn hér á landi og á alþjóðavettvangi. Standa fyrir margvíslegri fag- og sérfræðiþjónustu við félaga sína m.a. á sviði markaðsmála, nýsköpunar, gæðamála og framleiðslu með útgáfu fræðsluefnis og kynningar- og fræðslufundum.
    • Vinna að viðskipta- og hagrannsóknum til þess að fylgjast með starfsskilyrðum iðnaðarins og samanburði við aðrar greinar atvinnulífsins innanlands og erlendis.
    • Gæta hagsmuna iðnaðarins við kjarasamningsgerð Samtaka atvinnulífsins.
    • Vera málsvari sinna félagsaðila út á við og álykta fyrir þá varðandi mál sem varða hagsmuni þeirra og opinbera umfjöllun.
    • Vinna að almennri kynningu á íslenskum iðnaði og hvetja með aðgerðum sínum almenning og opinbera aðila til þess að nýta innlenda framleiðslu að öðru jöfnu.
    • Standa vörð um hagsmuni félagsmanna og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart opinberum aðilum og öðrum stofnunum, samtökum og fyrirtækjum í þeim málum sem hagsmuni þeirra varða. Í því felst m.a. að samtökin geta komið fram fyrir hönd félagsmanna, eins eða fleiri, fyrir dómstólum og stjórnsýslunefndum í málum sem varða sameiginlega jafnt sem einstaklingsbundna hagsmuni þeirra.

 

  • Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ
  • Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ
  • Íris Hannah Atladóttir, hagfræðingur SVÞ
  • Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur SVÞ
  • Ragna Vala Kjartansdóttir, skrifstofustjóri fræðslumála SVÞ
  • Rúna Magnúsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri SVÞ

    Hagsmunaverðir SVÞ koma fram fyrir hönd aðildarfyrirtækja SVÞ en félagatal samtakanna má finna á eftirfarandi vefsíðu: https://svth.is/felagatal/
     
  • Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
  • Ari Fenger, stjórnarformaður Viðskiptaráðs Íslands

  • Viðskiptaráð er með starfsstöð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

    Ofangreindir hagsmunaverðir sinna viðvarandi verkefnum hjá Viðskiptaráði Íslands á meðan þeir gegn framangreindum störfum hjá ráðinu og sinna þeir hagsmunagæslu í samræmi við tilgang og lög þess. 

    Hlutverk og tilgangur Viðskiptaráðs er að gæta hagsmuna viðskiptalífsins, efla skilning á mikilvægi frjálsræðis í viðskiptum, lágmörkun opinberra afskipta, hagfellds skattaumhverfis og annarra þátta er miða að því að auka samkeppnishæfni Íslands.
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
    Formaður er kosinn til tveggja ára í senn, síðast 2021. Hlutverkið er viðvarandi launað starf í 100% starfshlutfalli.

  • Bergþór Heimir Þórðarson, varaformaður ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík
    Varaformaður er kosinn til tveggja ára í senn, síðast 2020. Hlutverkið er viðvarandi launað starf í 50% starfshlutfalli.

  • Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ. Starfsstöð er í Sigtúni 42, 105 Reykjavík
    Framkvæmdastjóri er ráðin ótímabundið í 100% starfshlutfalli. Hlutverkið er viðvarandi.

  • Bandalagið samanstendur af 41 aðildarfélagi fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra. Aðildarfélögin eru hagsmunasamtök ólíkra fötlunarhópa sem öll starfa á landsvísu. Hvert og eitt er með sérþekkingu á sínu sviði og veita margskonar fræðslu og stuðning. Samanlagður félagafjöldi þeirra er um 36 þúsund manns.

    Hlutverk ÖBÍ, og þar með skráðra hagsmunavarða þess, er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks gagnvart opinberum aðilum í hverskyns hagsmunamálum svo sem varðandi löggjöf, framkvæmd hennar og í dómsmálum er snerta rétt þess. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er leiðarljós í starfi bandalagsins.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta