Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2018

Þórir Ibsen afhenti Jánus Áder, forseta Ungverjalands, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi

Þórir Ibsen sendiherra afhenti þann 5. nóvember, 2018, Jánus Áder, forseta Ungverjalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi með aðsetur í Reykjavík. Við tilefnið ræddu þeir meðal annars um loftslagsmál, endurnýjanlega orku og framtíð Norðurskautsins. Í kjölfarið átti hann fundi með embættismönnum um viðskipti ríkjanna, einkum á sviði jarðvarma, Uppbyggingarsjóð EES og íslenska stúdenta í læknisfræðinámi  í Debrecen. Íslensk jarðvarmafyrirtæki hafa starfað um nokkurt skeið í Ungverjalandi og tók Þórir hús á skrifstofu Mannvits í Búdapest þar sem Árni Magnússon tók á mótin honum.
  • Þórir Ibsen afhenti Jánus Áder, forseta Ungverjalands, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum