Hoppa yfir valmynd
17. maí 2019

Yfirlýsing á alþjóðadegi gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki.

Fastanefnd Íslands hjá alþjóðastofnunum í Vínarborg veitti alþjóðadegi gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki (IDAHOTB) í dag, 17. maí, góðan stuðning. Ísland, Kanada og Noregur stóðu saman að yfirlýsingu í fastaráði ÖSE af þessu tilefni og var þar meðal annars hvatt til þess að öll aðildarríki afnemi lög sem fela í sér mismunun gegn fólki vegna kynhneigðar þess og stöðvi allt ofbeldi gegn LGBTI-fólki. Lýst er yfir áhyggjum vegna mannréttindabrota í Tsjetsjeníulýðveldinu í Rússlandi. Þá tók fastanefndin einnig þátt í svipaðri yfirlýsingu hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg og gerðist aðili að átakinu „Diplomats for Equality“, sem eiga mun aðild að EuroPride í Vínarborg í júnímánuði.

Sameinleg yfirlýsing

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum