Hoppa yfir valmynd
21. júní 2019

Sigríður Snævarr afhendir trúnaðarbréf í Singapúr

Sigríður Snævarr, sendiherra og frú Halimah Yakob, forseti Singapúr  - mynd

Í lok maímánaðar afhenti Sigríður Snævarr frú Halimah Yakob, forseta Singapúr, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands. Athöfnin fór fram  í Istanahöllinni í Singapúr og af Íslands hálfu voru viðstaddir athöfnina, þeir Prakash Pillai kjörræðismaður Íslands í Singapúr og Halldór Elís Ólafsson viðskiptafulltrúi í Tokyo, stjórnarmaður í Norræna Nýsköpunarsetrinu í Singapúr. Sigríður Snævarr er heimasendiherra og hefur auk Singapúr fleiri ríki í sínu umdæmi, þ.m.t. Páfagarð, Malasíu og Ástralíu. 

Í febrúar á þessu ári var formlega opnað Norræna Nýsköpunarsetrið, (e. Nordic Innovation House) í Singapúr.  Þáttökugjald Íslands að Nýsköpunarsetrinu felst í því að Sigríður leggur til 10 vinnustundir í mánuði í þágu þess. Undirbúningur er þegar hafinn að íslenskri fyrirtækjakynningu í Singapúr í nóvember næstkomandi í nánu samstarfi við Íslandsstofu. 

Ísland skipaði aðalræðismann í Singapúr 1977, en stofnað var stjórnmálasamband 1999 og gerður fríverslunarsamningur 2002. Samskipti Íslands og Singapúr má rekja aftur til samstarfsins á sviði þjóðréttar og hafréttar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum