Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2019

Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína

Hljómsveitin Múm hélt tónleika í borgunum Shenzhen, Hangzhou, Shanghai og Peking í nóvembermánuði. - mynd

Óvenju mikil Íslandstengd menningarstarfsemi átti sér stað í Kína í nóvembermánuði. Íslenski dansflokkurinn tók þátt á alþjóðlegri listahátíð í Hong Kong og þar kom Gyða Valtýsdóttir einnig fram. Hallveig Rúnarsdóttir og Hrönn Þráinsadóttir héldu tónleika á listahátíð í Shanghai fyrir tilstilli sendiráðsins og héldu áfram í tónleikaferð um Kína með viðkomu í borgunum Hefei, Peking, Tianjin og Chongqing. Grínistarnir Helgi Steinar Gunnlaugsson, Bjarni töframaður og Þórhallur Þórhallsson ferðuðust um Kína með uppistand í fjórum borgum og hljómsveitin Múm lauk vel sóttri tónleikaferð sinni um Kína í Peking sunnudag 24. nóvember en hafði þá komið fram í borgunum Shenzhen, Hangzhou og Shanghai.

Þá flutti sendiherra þann 18. nóvember ávarp við hátíðlega setningarathöfn nýrrar þýðingarmiðstöðvar erlendra mála við Háskóla erlendra fræða í Peking (Beijing Foreign Studies University) en þar er einmitt boðið uppá íslenskunám til háskólaprófs. Mikilvirkir þýðendur íslenskra nútímabókmennta, Íslendingasagna og höfunda á borð við Andra Snæ voru viðstaddir athöfnina. 

Síðast en ekki síst ber svo að geta frábærrar frammistöðu liðs íslenska sendiráðsins í kinversk-norræna fótboltamótinu sem haldið var í fimmta skipti og skipulagt er af kínverskum yfirvöldum. Ísland lenti í öðru  sæti á eftir Íþróttaháskóla Beijing borgar en vann frækna sigra á liðum sendiráða Danmerkur og Svíþjóðar ásamt vel skipuðu liði utannríkisráðuneytis Kína. 

  • Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína - mynd úr myndasafni númer 1
  • Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína - mynd úr myndasafni númer 2
  • Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína - mynd úr myndasafni númer 3
  • Íslensk menningarstarfsemi blómstrar í Kína - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum