Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2020

Fíkniefnavarnir á Íslandi kynntar hjá Fíkniefnanefnd SÞ í Vín (CND).

Inga Dóra Sigfúsdóttir, forstjóri Rannsókna og greiningar, á fundi CND - mynd

Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi og forstjóri vísindarannsókna hjá Rannsóknum og greiningu, kynnti fíkniefnavarnir á Íslandi á hliðarviðburði á 63. fundi fíkniefnanefndar SÞ   (Commission on Narcotic Drugs, CND) í Vínarborg 2. mars 2020. Sagði hún frá „Planet Youth“-verkefnum fyrirtækisins á Íslandi og víða um heim. Ræddu fundarmenn fíkniefnavarnir í ljósi lögleiðingar kannabisefna. Guðni Bragason, fastafulltrúi gagnvart skrifstofu SÞ í Vínarborg, sagði á fundinum að flestar fjölskyldur kæmust á einhvern hátt í snertingu við fíkniefnavandann og þörf væri á nýjum lausnum, sem byggðu á samfélagsnálgun, eins og þeim sem fælust í „Planet Youth“.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum