Hoppa yfir valmynd
17. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra ræddi við Pompeo á símafundi í dag

Utanríkisráðherra ræddi við Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á símafundi í dag. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi við Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í síma í dag um áhrif tímabundins banns Bandaríkjastjórnar við ferðum ferðamanna af Schengen-svæðinu, sem nær einnig til íslenskra ríkisborgara.

Utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að viðhalda farþegaflugi milli landanna tveggja með hliðsjón af sérstakri stöðu landsins mitt á milli Evrópu og Ameríku. Pompeo hrósaði aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að hefta útbreiðslu Covid-19-veirunnar. Ráðherrarnir ræddu mikilvægi þess að tekist yrði á við efnahagsafleiðingar faraldursins, ekki síst áhrifin á millilandaflug. Utanríkisráðherra undirstrikaði áhrifin á flug Icelandair vestur um haf og þörfina á því að huga að stöðu mála þegar heimsfaraldurinn er genginn yfir. Ráðherrarnir urðu ásáttir um að undirbúa samráð á sérfræðingastigi um þessi mál, hugsanlega í tengslum við efnahagssamráð ríkjanna í stærra samhengi.

Þeir ræddu einnig viðskiptamál og báðir lögðu áherslu á mikilvægi sambands landanna tveggja og vináttu.

„Við áttum gott samtal og ég lýsti vonbrigðum mínum af aðgerðum sem Bandaríkin og nú Evrópusambandið hafa gripið til. Við þurfum að leita allra leiða til að lágmarka þann skaða sem þessar aðgerðir valda. Við verðum einnig að horfast í augu við að sú staða sem komin er upp er auðvitað án nokkurra fordæma og það er brýnt að hefta útbreiðslu veirunnar með marktækum og vísindalegum aðgerðum. Að sama skapi var mikilvægt að undirstrika gott samband landanna tveggja og um það vorum við sammála,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

 

 

  • Utanríkisráðherra ræddi við Mike Pompeo á símafundi í dag - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum