Hoppa yfir valmynd
30. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland leggur fram mannúðaraðstoð vegna Sýrlands

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tilkynnti um tæplega 700 milljóna króna heildarframlag Íslands á áheitaráðstefnu um Sýrland í dag. Framlagið er til fjögurra ára og skiptist á milli áherslustofnana og sjóða Íslands í mannúðar- og þróunarsamvinnu. 

„Hrikaleg átök hafa nú geisað í Sýrlandi í heilan áratug og er stuðningur alþjóðasamfélagsins mikilvægari en nokkru sinni fyrr,“ sagði Guðlaugur Þór í ræðu sinni á ráðstefnunni. „Við megum ekki líta undan.“

Í máli ráðherra kom einnig fram að virðing fyrir mannréttindum og mannúðarlögum væri ekki valkvæð. Þeim bæri að fylgja undantekningarlaust. Þá yrðu rétt skilyrði að vera fyrir hendi til að sýrlenskir borgarar gætu snúið til heimalands síns á valfrjálsan, öruggan og mannsæmandi hátt.

Stríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir í áratug og leitt af sér miklar hörmungar. Hundruð þúsunda hafa látið lífið og yfir helmingur þjóðarinnar hefur neyðst til að flýja heimili sín og oft á tíðum heimaland sitt. Mannúðarástandið fer versnandi og fleiri þurfa á aðstoð að halda í ár en nokkru sinni fyrr síðan að stríðið hófst. Má þetta meðal annars rekja til langvarandi neyðarástands, mikilla efnahagsþrenginga og heimsfaraldurs.

Talið er að 13,4 milljónir einstaklinga í Sýrlandi þurfi á mannúðaraðstoð að halda í ár auk þess sem að Sameinuðu þjóðirnar vonast til að geta aðstoðað 5,6 milljónir sýrlenskra flóttamanna í nærliggjandi ríkjum. Ísland er meðal þeirra sem hefur lagt sitt að mörkum við að lina þjáningar óbreyttra borgara með fyrirsjáanlegum fjárstuðningi.

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum