Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga 2021

Alþingi - myndStjórnarráðið

Sendiráðið í Washington vekur athygli á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga 25. september 2021 hefst föstudaginn 13. ágúst.

Tekið verður á móti kjósendum í Sendiráði Íslands, 2900 K Street NW, 20007 Washington DC, alla virka daga frá klukkan 9:30 til 15:30. Vinsamlega bókið tíma með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Opið verður fyrir atkvæðagreiðslu fram til 24. september.

Kjósendur eru hvattir til að koma tímanlega á kjörstað í ár, þar sem að kjósendur þurfa eftir sem áður sjálfir að koma sínum atkvæðum á kjörstað á Íslandi og póstsendingar gætu tekið lengri tíma en vant er.

Kjósendur eru beðnir um að framvísa íslenskum persónuskilríkjum með mynd, þ.e. vegabréfi eða ökuskírteini.

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 8 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Ef vafi leikur á því hvort kjósandi er skráður á kjörskrá á Íslandi, má ganga úr skugga um það í gegnum Þjóðskrá Íslands en einnig er að finna nánari upplýsingar um kosningarnar á heimsíðu Þjóðskrár.

Þeir sem vilja kjósa á ræðisskrifstofum er bent á að hafa samband beint við ræðismenn til að panta tíma. Sjá lista yfir ræðismenn í Bandaríkjunum.

Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verða birtar á www.kosning.is.


This is a reminder regarding the parliamentary elections 2021 in Iceland. The pre-election starts on 13 August at the Embassy of Iceland in Washington. For more information, please contact the Embassy. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum