Hoppa yfir valmynd
27. október 2021

Ljósmyndasýningin Lífríki norðurslóða "Í gegnum linsuna" opnar í anddyri sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn á Norðurslóðahátíð

Norðurslóðahátíð eða Arktisk Festival verður að venju haldin á Norðurbryggju dagana 30.-31. október n.k.

Að því tilefni mun ljósmyndasýningin Lífríki norðurslóða „Í gegnum linsuna” opna í anddyri sendiráðsins. Ljósmyndasýningin er safn ljósmynda sem tóku þátt í ljósmyndakeppni CAFF árið 2018, en CAFF er vinnuhópur Norðurskautsráðs um verndun lífríkisins á norðurslóðum. Ljósmyndakeppnin hefur verið haldin 2014 og 2018 og hefur báðum keppnunum fylgt fjöldi sýninga á Íslandi og erlendis. Keppninni og sýningunni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi lífríkisins á norðurslóðum og benda á þann fjölda áskorana sem það stendur frammi fyrir en jafnframt að sýna áhorfandanum fegurð og töfra þessa einstaka svæðis. Þessi sýning í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn er haldin í tilefni 25 ára afmælis Norðurskautsráðsins og 30 ára afmælis CAFF skrifstofunnar, sem staðsett er á Akureyri.

Í tilefni opnunarinnar mun Tom Christensen formaður Circumpoloar Biodiversity Monitoring Program segja almennt frá lífríki norðurslóða, sérstöðu þess og hvers vegna það er svo mikilvægt að vinna saman og samræma vöktun á svæðinu. Kári Fannar Lárusson verkefnastjóri hjá CAFF mun einnig fjalla um CAFF, Norðurskautsráðið og almennt um mikilvægi norðurslóðasamstarfs. Hann mun einnig fara nokkrum orðum um sýninguna, segja frá hugmyndinni á bak við keppnina og fjalla um einstaka ljósmyndir.

Sýningin mun opna formlega laugardaginn 30. október kl 11.00 og verður hún opin báða daga hátíðarinnar frá kl 10.00-16.00. Sýningin verður svo í framhaldinu opin í anddyri sendiráðsins alla virka daga fram til febrúarloka 2022.

Frekari upplýsingar um sýninguna Lífríki Norðurslóða „ í gegnum linsuna“.

CAFF gaf út Arctic Biodiversity Assessment (ABA) skýrsluna 2013 sem er fyrsta heildstæða mat á lífríki norðurslóða, með framlögum frá yfir 250 vísindamönnum, ásamt framlagi frumbyggja. Ljósmyndakeppnin var fyrst haldin 2014 til að vekja athygli á ráðstefnu CAFF um lífríki norðurslóða. Ráðstefnan var haldin í þeim tilgangi að þróa aðgerðaráætlun til að fylgja eftir ráðleggingum sem fram koma í skýrslunni um verndun lífríkisins á norðurslóðum. Ráðstefnan var síðan endurtekin 2018 til að meta árangur af því starfi sem unnið hefur verið.

Sýningarnar á Íslandi og sýningin í Kaupmannahöfn eru liðir í formennsku Íslands í Norðurskautsráði 2019-2021 og eru samstarfsverkefni CAFF og Alþjóðlegu Norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC). Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu í annað sinn, í maí 2019 og leiddi ráðið til 20 maí 2021. Yfirskrift formennskunnar, „Saman til sjálfbærni á norðurslóðum“ vísar til mikilvægi sjálfbærrar þróunar fyrir velferð Íslands og minnir á að starf Norðurskautsráðsins hefur frá upphafi miðað að því að tryggja sjálfbæra þróun og efla samvinnu á norðurslóðum. Þessi ljósmyndasýning er styrkt af utanríkisráðuneytinu en fjöldi stofnana og fyrirtækja hafa komið að verkefninu, þar ber sérstaklega að nefna stofnanir á Akureyri en Akureyri er miðstöð norðurslóðamála á Íslandi.  

Ljósmyndakeppnin 2018 var mjög farsæl með meira en 1600 innsendar myndir sem skiptust í fjóra flokka: lífríki, landslag, fólk og viðskipti og vísindi á norðurslóðum ásamt sérstökum flokki fyrir unga ljósmyndara. Aðalverðlaunin voru ljósmyndaferð til Rovaniemi í Finnlandi árið 2019.

Þekktir ljósmyndarar dæmdu keppnina og má þar nefna Carsten Egevang (www.carstenegevang.com), Einar Guðmann og Gyðu Henningsdóttir (www.icelandinphotos.is), Lawrence Hislop (www.lawrencehislop.com) og Krista Ylinen (www.kristaylinen.com).

Undir hverri mynd má sjá nafn ljósmyndara, í hvaða sæti myndin lenti, ráðleggingar varðandi lífríkið úr ABA skýrslunni og umsagnir dómara um viðkomandi mynd.

  • Ljósmyndasýningin Lífríki norðurslóða "Í gegnum linsuna" opnar í anddyri sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn á Norðurslóðahátíð - mynd úr myndasafni númer 1
  • Ljósmyndasýningin Lífríki norðurslóða "Í gegnum linsuna" opnar í anddyri sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn á Norðurslóðahátíð - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum