Hoppa yfir valmynd
6. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

Þórdís Kolbrún á fundi þróunarmiðstöðvar OECD

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í ráðherrafundi Development Centre, þróunarmiðstöðvar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), þar sem sjónum var beint að nauðsyn þess að öll ríki heims hafi aðgang að bjargráðum til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins.

Þórdís Kolbrún tók þátt í umræðu í gegnum fjarfundarbúnað um mikilvægi þess að bilið verði brúað milli þróunarríkja og auðugra ríkja hvað varðar aðgang að bóluefnum gegn COVID-19. „Heimsfaraldurinn hefur reynst vera stærsta áskorunin fyrir alþjóðasamfélagið og heimshagkerfið í áratugi,“ sagði hún meðal annars í ræðu sinni. „Það er brýnt verkefni að tryggja jafnt aðgengi að bóluefnum og sýna þannig samstöðu með öllum jarðarbúum.“

Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra vék einnig að framlagi Íslands til alþjóðlegs bóluefnasamstarfs. Íslensk stjórnvöld hafa lagt rúmlega milljarð króna til að bæta aðgang þróunarríkja að bóluefnum og hafa auk þess skuldbundið sig til að gefa á fjórða hundruð þúsund umframskammta af bóluefnum til efnaminni ríkja.

Á fundinum var einnig fjallað um aðgengi þróunarríkja að fjármagni til enduruppbyggingar í kjölfar heimsfaraldursins og vandann sem fylgir þungri skuldabyrði fátækustu ríkjanna.

Þróunarmiðstöð OECD styður þróunarríki við stefnumótun sem miðar að sjálfbærum vexti og velferð. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók við starfi framkvæmdastjóra miðstöðvarinnar fyrr á þessu ári og opnaði hún fundinn.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum