Hoppa yfir valmynd
6. október 2022

Styrkir Snorra Sturlusonar

Snorri Sturluson. Málverk eftir Hauk Stefánsson frá 1930 - mynd

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast styrki Snorra Sturlusonar. Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði mannvísinda til að dveljast á Íslandi í 3 mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi.

Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum greiðir götu styrkþega meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur og í lok hennar skulu styrkþegar skila stofnuninni greinargerð um hvernig styrknum var varið.

Styrkirnir eru veittir árlega. Þriggja manna nefnd, sem skipuð er fulltrúum frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands og Rithöfundafélagi Íslands, úthlutar styrkjunum.

Í umsókn sinni skulu umsækjendur gera stutta en rækilega grein fyrir tilgangi með dvöl á Íslandi, dvalartíma, svo og menntun og störfum.

Umsóknir skal senda fyrir 1. desember ár hvert á netfangið [email protected] eða í bréfpósti á heimilisfangið:

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Alþjóðaskrifstofa
Laugavegi 13
101 Reykjavík
Ísland


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum