Hoppa yfir valmynd
22. maí 2023 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra í opinberri vinnuheimsókn í Sviss

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Ignaccio Cassis utanríkisráðherra Sviss - myndEDA

Tvíhliða samstarf Íslands og Sviss á, m.a. á sviði mannréttinda, efnahagsmála og grænna lausna voru meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Ignaccio Cassis utanríkisráðherra Sviss í Zürich dag. Utanríkisráðherra er þar stödd í opinberri vinnuheimsókn.

Ráðherrarnir ræddu stöðu heimsmála, ekki síst um mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu. Sviss gegnir nú í maí formennsku í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og dögunum lét Ísland af formennsku í Evrópuráðinu. Á fundi ráðherranna í dag kom skýrt fram að ríkin eru samherjar á flestum sviðum alþjóðamála, beita sér ákveðið fyrir virðingu fyrir alþjóðalögum og friðsamlegri lausn deilumála og deila gildum á sviði mannréttinda, mannúðarmála og sjálfbærar þróunar.

„Fundurinn í dag var kærkomið tækifæri til að undirstrika samstöðu og samstarf á milli Ísland og Sviss almennt, til dæmis á sviði mannréttinda. Fulltrúar okkar í stofnunum Sameinuðu þjóðanna vinna mikið saman í málefnastarfi sem hefur það að leiðarljósi að verja mannréttindi í heiminum. Einnig höfum við í áratugi átt náið samstarf um gerð fríverslunarsamninga innan Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA og erum samstíga um að verja og styðja við hið alþjóðlega viðskiptakerfi innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.”

Á morgun tekur utanríkisráðherra þátt í viðburði á vegum Íslandsstofu sem hefur það að markmiði að vekja athygli á tækifærum á Íslandi almennt og sjálfbærum fjárfestingum sérstaklega.  Einnig mun utanríkisráðherra heimsækja barnaspítala í Zürich þar sem vörur frá íslenska fyrirtækinu Kerecis eru notaðar til sárameðhöndlunar.

  • Utanríkisráðherra í opinberri vinnuheimsókn í Sviss - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum