Hoppa yfir valmynd
9. júní 2023 Utanríkisráðuneytið

Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu lögð niður

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Sendiherra Rússlands var í dag kallaður í utanríkisráðuneytið og honum tilkynnt um þessa ákvörðun. Þá var honum tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland lækki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Þá hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun.

Ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins er tekin í ljósi þess að það samræmist ekki forgangsröðun í utanríkisþjónustu Íslands að starfrækja sendiskrifstofu í Moskvu við núverandi aðstæður. Ísland starfrækir átján sendiráð í höfuðborgum erlendra ríkja, einkum í ríkjum þar sem efnahagsleg, stjórnmálaleg og menningarleg tengsl eru mikil eða um samstarfsríki í þróunarsamvinnu er að ræða.

Öll samskipti við Rússland eru í lágmarki hvort sem litið er til viðskiptalegra, menningarlegra eða stjórnmálalegra tengsla. Forsendur fyrir starfsemi sendiráðs í Moskvu eru því gjörbreyttar.

Ísland hefur rekið sendiráð í Moskvu frá árinu 1944 að undanskildum árunum 1951-1953 þegar viðskipti lágu niðri milli ríkjanna. Sovétríkin höfðu ekki sendiherra á Íslandi á árunum 1948-1954.

Ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins felur ekki í sér slit á stjórnmálasambandi ríkjanna. Um leið og aðstæður leyfa verður lögð áhersla á að hefja starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu á ný.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum