Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2024

Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar

Jón Kalman Stefánsson, Eric Boury, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Unnur Orradóttir Ramette - mynd

Óhætt er að fullyrða að mikill áhugi er á íslenskum bókmenntum í Frakklandi og hefur þessi frábæri árangur vakið athygli franskra fjölmiðla.

Nú í byrjun árs koma út sex nýjar íslenskar bækur í franskri þýðingu, þar á meðal skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur, Eldarnir – Ástin og aðrar hamfarir, og Guli kafbáturinn eftir Jón Kalman Stefánsson.

Að því tilefni stóð sendiráðið fyrir vel heppnaðri móttöku í samstarfi við bókaútgefendur Sigríðar Hagalín og Jóns Kalmans, þar sem lykilfóki í bókmenntageiranum gafst kostur á að kynnast rithöfundunum betur.

Eldarnir – Ástin og aðrar hamfarir er þriðja bók Sigríðar sem kemur út á frönsku og Guli kafbáturinn er 9. verk Jóns Kalmans sem gefið er út á franskri tungu. Báðar bækurnar eru þýddar af Eric Boury. Verk Jóns Kalmans hafa notið einstakrar velgengni í Frakklandi og unnið til virtra verðlauna.

  • Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Unnur Orradóttir Ramette og Jón Kalman Stefánsson - mynd
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 2
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 3
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 4
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 5
  • Jón Kalman Stefánsson, Eric Boury, Sigríður Hagalín Björnsdóttir - mynd
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 7
  • Kynning á nýútgefnum verkum Sigríðar Hagalín Björnsdóttur og Jóns Kalmans Stefánssonar - mynd úr myndasafni númer 8

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum