Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2024 Utanríkisráðuneytið

Ísland fordæmir meðferð rússneskra stjórnvalda á Alexei Navalny

Íslensk stjórnvöld fordæma meðferð rússneskra stjórnvalda á stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny sem leiddi til andláts hans í síðustu viku. Þá fordæma íslensk stjórnvöld aðför rússneskra stjórnvalda að mannréttindum og frelsi fólks, en fjöldi fólks hefur verið fangelsaður fyrir að hafa opinberlega harmað andlátið og lýst samúð með málstað Navalny.

Forstöðumaður sendiráðs Rússlands í Reykjavík var kallaður í utanríkisráðuneytið í dag þar sem honum var gerð grein fyrir afstöðu Íslands vegna dauða Alexei Navalny. Ísland fordæmir fangelsun og illa meðferð þeirra sem berjast fyrir mannréttindum og frelsi. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum