Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2024 Utanríkisráðuneytið

Fríverslunarsamningur við Taíland í höfn

Fríverslunarviðræðunum sem nú er lokið var ýtt úr vör á ráðherrafundi EFTA í Borgarnesi 2022. - myndEFTA

Ísland hefur náð samkomulagi um fríverslunarsamning við Taíland. Samningurinn kveður á um tollfríðindi fyrir allar helstu útflutningsafurðir Íslands til Taílands. Samningurinn tryggir meðal annars fullt tollfrelsi inn á Taílandsmarkað fyrir flök af laxi, þorsk, grálúðu og loðnuhrogn, vélbúnað til matvælaframleiðslu og stoðtæki.  

„Fríverslunarsamningur við Taíland mun bæta samkeppnisstöðu íslenskra útflytjenda á hinum stóra og ört vaxandi Taílandsmarkaði. Samningurinn fylgir þannig eftir útflutningsstefnu Íslands, sem unnin var í samstarfi við atvinnulífið. Þar var lögð áhersla á að bæta aðgang íslenskra fyrirtækja að mörkuðum Suðaustur-Asíu. Þar höfum við náð góðum árangri síðustu ár með fríverslunarsamningum við Indland, Filippseyjar og Indónesíu. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú þegar framleiðsla og viðskiptaumhverfi Asíu er að taka örum breytingum og tryggir að íslensk fyrirtæki búi ávallt við bestu viðskiptakjör. Þannig tryggjum við hagsmuni Íslands,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Samningurinn kveður einnig á um samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnunar. Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum ennfremur víðtækari heimildir til fjárfestinga á Taílandi, auk þess að bæta aðgang íslenskra þjónustufyrirtækja að taílenskum þjónustumarkaði. Þá fjallar samningurinn meðal annars um vernd hugverka og  sjálfbær viðskipti. 

Viðræðunum lauk í dag, en þær hafa verið sameiginlegar með hinum EFTA-ríkjunum, Liechtenstein, Noregi og Sviss. Samningaviðræður tóku rúmlega tvö ár. Ætlunin er að undirrita samninginn formlega í upphafi nýs árs en hann mun taka gildi þegar Ísland og Taíland hafa lokið fullgildingarferli sínu. 

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta