Hoppa yfir valmynd
9. maí 2025 Utanríkisráðuneytið

Aukin áhersla Íslands á öryggis- og varnarmál til umræðu í Washington

Sendinefndir Íslands og Bandaríkjanna. - mynd

Árlegt samráð Íslands og Bandaríkjanna um öryggis- og varnarmál fór fram í Washington D.C. í gær. Öflug tvíhliða varnarsamvinna ríkjanna og staða alþjóðaöryggismála voru með helstu umræðuefna. 

Þá kynnti íslenska sendinefndin þeirri bandarísku ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að setja varnar- og öryggismál í öndvegi og yfirstandandi vinnu við mótun stefnu í varnar- og öryggismálum fyrir Ísland.

Komandi leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Haag í sumar var sömuleiðis til umræðu sem og stuðningur við Úkraínu og friðarhorfur þar. Enn fremur var rætt um þróun öryggismála á norðurslóðum og áframhaldandi náið samstarf þar að lútandi.  

Ísland og Bandaríkin áréttuðu mikilvægi gagnkvæmra varnarskuldbindinga og vaxandi samstarfs um eftirlit og aðgerðir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Rætt var um samvinnu ríkjanna í tengslum við kafbátaleit, þjónustuheimsóknir bandarískra kafbáta, uppbyggingu á varnarinnviðum, varnaræfingar, áfallaþol og netöryggi.  Aukinn viðbúnaður og eftirlit á Norður-Atlantshafi tryggir sameiginlega öryggishagsmuni ríkjanna og annarra bandalagsríkja.  

María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, og Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins, fóru fyrir sendinefnd Íslands, en auk utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Washington tók fulltrúi frá dómsmálaráðuneytinu þátt í samráðinu. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar voru frá utanríkisráðuneyti, varnarmálaráðuneytinu og sendiráðinu í Reykjavík.

Að auki áttu fulltrúar Íslands sérstaka fundi um málefni Mið-Austurlanda og varnarmál.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta