Hoppa yfir valmynd
21. maí 2025 Utanríkisráðuneytið

Tékkland sinnir loftrýmisgæslu við Ísland í fjórða sinn

JAS-39C Gripen orrustuþotur tékkneska flughersins við Ísland. - myndLHG

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst á morgun með komu flugsveitar tékkneska flughersins til Íslands. Alls munu um 80 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C Gripen orrustuþotur. 

Þetta er í fjórða sinn sem Tékkar annast loftýmisgæslu hér á landi.

 Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, og í samstarfi við Isavia.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 22. maí til 2. júní, með fyrirvara um veður. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta