Þátttaka Íslands á þriðju hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nice
Þriðja hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna (UNOC) stendur nú yfir í Nice í Frakklandi með þátttöku Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, sem leiðir sendinefnd Íslands.
Í opnunarávarpi sínu lagði ráðherra m.a. áherslu á víðtækari vistkerfisnálgun til viðbótar við sjálfbæra fiskveiðistjórnun. Þá tilkynnti hann um þriðju alþjóðlegu vísindaráðstefnuna um plastmengun í hafi á Íslandi árið 2026.
Utanríkisráðuneytið sinnir umfangsmiklu samstarfi af Íslands hálfu, m.a. þegar kemur að formennsku í Bláfæðubandalaginu (Aquatic Blue Food Coalition), alþjóðlegum ráðstefnum og málefnum Norðurskautsins svo fátt eitt sé nefnt.