Hoppa yfir valmynd
13. júní 2025 Utanríkisráðuneytið

Varnarmálaráðherra Tékklands í heimsókn á Íslandi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Jana Černochová varnarmálaráðherra Tékklands. - myndLHG/Guðmann Rúnar Lúðvíksson

Möguleg tækifæri til að efla enn frekar samstarf Íslands og Tékklands á sviði varnarmála voru til umræðu á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Jana Černochová, varnarmálaráðherra Tékklands, sem fram fór í gær á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Tékkneski ráðherrann sótti Ísland heim í tilefni þess að nú sinnir flugsveit tékkneska flughersins loftrýmisgæslu hér á landi.

„Það blasa við okkur fjölmörg tækifæri til að efla okkar góða varnarsamstarf enn frekar, meðal annars hvað varðar loftrýmisgæsluna sem Tékkar sinna nú hér á landi í fjórða sinn og við erum gríðarlega þakklát fyrir,“ segir Þorgerður Katrín. „Við erum auðvitað nánir bandamenn í Atlantshafsbandalaginu og með loftrýmisgæslunni leggja þjóðirnar báðar sitt af mörkum til sameiginlegra varna bandalagsins á þessu mikilvæga svæði.“

Ráðherrarnir ræddu auk þess um varnarstefnir ríkjanna og mótun þeirra, komandi leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, sem fram fer í Haag síðar í mánuðinum, fælingu og varnir á norðurslóðum og samvinnu ríkjanna við Bandaríkin.

Þá var varnarbarátta Úkraínu gegn ólöglegu landvinningastríði Rússlands til umræðu sem og yfirstandandi viðræður um endalok átakanna. Ísland hefur stutt við verkefni að frumkvæði Tékklands um kaup á skotfærum fyrir Úkraínu, og áréttuðu ráðherrarnir áframhaldandi stuðning ríkja sinna við varnarbaráttu þjóðarinnar.

  • Af tvíhliðafundi ráðherranna á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta