Hoppa yfir valmynd
20. júní 2025

Listasafn Árnesinga tekur við gjöf frá franska listamanninum Bernard Alligand

Kristín Scheving safnstjóri Listasafns Árnesinga og franski listamaðurinn Bernard Alligand - mynd

Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga í Hveragerði, tók á móti átta listaverkum í París 12. júní sl. fyrir hönd safnsins. Gjöfina afhenti franski listamaðurinn Bernard Alligand sem hefur sótt innblástur frá Íslandi í rúmlega 20 ár og einnig gefið út bóklistaverk með frumsömdum ljóðum Sigurðar Ingólfssonar og Sigurðar Pálssonar. Listamaðurinn vinnur mest með steinefni frá Íslandi, ýmist á striga eða á pappír. Hann tók þátt í Listahátíð í Reykjavík 2014 þar sem bóklistaverk voru í forgrunni, sér í lagi verk með ljóðskáldinu og höfundinum Michel Butor.

Þá setti hann upp sýningu á verkum sínum í sendiherrabústaðnum í desember 2023 undir yfirskriftinni „Retour d‘Islande“. Við það tækifæri var sýnd heimildarmyndin „Échos“ eftir Axel Clévenot um Íslandsferðir listamannsins sem unnið hefur til ýmissa verðlauna.

Sendiráðið óskar Listasafni Árnesinga til hamingju með gjöfina.

  • Kristín Scheving safnstjóri Listasafns Árnesinga og franski listamaðurinn Bernard Alligand - mynd
  • MATIERES CELESTES  80X80  - mynd
  • Listaverk eftir Bernard Alligand 58X58 - mynd
  • ISLANDE, LES SOURCES   100X100  - mynd
  • Listaverk eftir Bernard Alligand 58X58 - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta