Ríkjahópur um sprengjuleit og eyðingu í Úkraínu fundar í Reykjavík
Fulltrúar ríkja sem skipa ríkjahóp um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu, áttu sameiginlegan fund í Reykjavík í síðustu viku.
Ísland og Litáen leiða vinnu hópsins sem styður við þjálfun og kaup á margvíslegum búnaði til sprengjuleitar og -eyðingar í Úkraínu. Alls taka 22 ríki þátt í starfi hópsins auk tólf samstarfsaðila. Á fundinn mættu jafnframt fulltrúar úkraínskra stjórnvalda.
„Við erum mjög stolt af því að leiða þetta afar mikilvæga verkefni ásamt vinaþjóð okkar Litáen, en í Úkraínu þekja jarðsprengjur gríðarlegt landsvæði og stefna lífi og limum saklausra borgara, meðal annars barna, í hættu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þá hefur þessi staða auðvitað áhrif á varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu og blóðugu landvinningastríði Rússa, þannig að þessi stuðningur okkar og bandalagsríkjanna skiptir miklu máli fyrir baráttu úkraínsku þjóðarinnar.“
Á fundinum fóru Úkraínumenn yfir stöðuna í landinu og upplýstu um hvar skóinn kreppir helst að í málaflokknum. Farið var yfir áætlanir um framlög ríkjanna sem að hópnum standa, bæði hvað varðar búnað sem þau hyggjast leggja fram sem og áætlanir um þjálfun og framlög í sjóð sem bæði sinnir sameiginlegum innkaupum á nauðsynlegum búnaði til sprengjuleitar og -eyðingar og fjármagnar þjálfunarverkefni. Sjóðurinn hefur komið að góðum notum við kaup á mikilvægum búnaði. Vel hefur gengið að sækja framlög í sjóðinn á þessu ári en vonast er til að fleiri ríki leggi honum til fjármagn til þess að ná markmiðum sem hópurinn hefur sett sér í ár.
Á fundinum var einnig greint frá vettvangsheimsókn sem fulltrúar hópsins, þar á meðal Íslands, fóru í til Úkraínu í fyrstu viku júní.