Hoppa yfir valmynd
25. júní 2025 Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Einhugur og samstaða á sögulegum leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins

Leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins ásamt framkvæmdastjóranum Mark Rutte. - myndNATO

Einhugur og samstaða einkenndi leiðtogafund aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í Haag í Hollandi, sem var sóttur af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Fundurinn var haldinn í skugga árásarstríðs Rússlands í Úkraínu og átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.

Í aðdraganda fundarins var rætt um nauðsyn þess að auka framlög til varnarmála til að efla sameiginlegar varnir bandalagsríkja. Leiðtogarnir sammæltust um að auka bein fjárframlög til varnarmála úr 2% í 3,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að því markmiði verði náð árið 2035. Því til viðbótar muni bandalagsríki verja 1,5% af VLF til varnartengdra fjárfestinga og framlaga sem styðja við áfallaþol, öryggi og varnir. Undir það geta fallið ýmiskonar innviðir, samgöngumannvirki, netöryggi, löggæsla, landhelgisgæsla og eftirlit á landamærum svo dæmi séu nefnd.

„Þetta var sögulegur leiðtogafundur. Það sem helst stendur upp úr er órjúfanleg samstaða aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem er sterkasta varnarbandalag í heiminum,“ segir forsætisráðherra. „Varðandi framlög til varnarmála þá er ríkur skilningur á sérstöðu Íslands og þeirri staðreynd að við höfum ekki her. Okkar framlag mun áfram felast fyrst og fremst í því að veita aðstöðu, búnað og stuðning við bandalagsríki sem efla öryggi og varnir bandalagsríkja. Við munum vinna markvisst að því að efla innviði sem styðja við áfallaþol, öryggi og varnir Íslands, samkvæmt markmiðinu um 1,5% af VLF til varnartengdra verkefna.“

Á leiðtogafundinum var ítrekaður einróma stuðningur aðildarríkjanna við baráttu Úkraínu gegn grimmilegri árás Rússlands.

„Það skiptir öllu máli að styðja við Úkraínu, sem berst ekki aðeins fyrir eigin tilverurétti, lýðræði og frelsi, heldur einnig fyrir öryggi og fullveldi allra Evrópuríkja og þar með talið okkar,“ segir Þorgerður Katrín. „Úkraína hefur lýst yfir vilja til vopnahlés og friðarviðræðna og einarður varnarstuðningur tryggir sterkari samningstöðu Úkraínu.“

Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra nýttu tækifæri sem gáfust á milli formlegra funda til að eiga samtöl um samstarf Íslands á alþjóðavísu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra funduðu með leiðtogum Kanada og Norðurlanda um aukið samstarf m.a. á norðurslóðum og öryggismál í Norður-Atlantshafi. Þá funduðu utanríkisráðherrar Norðurlanda sín á milli um stuðning við Úkraínu og önnur sameiginleg verkefni.

Hér má finna sameiginlega yfirlýsingu leiðtogafundar Atlantashafsbandalagsins sem var samþykkt einróma við lok fundarins.

  • Frá leiðtogafundinum. - mynd
  • Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta. - mynd
  • Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, bjóða Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, velkomna á leiðtogafundinn. - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta