Íslensk stjórnvöld aðstoða dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands
Fulltrúar á vegum utanríkisráðuneytisins aðstoðuðu í dag sextán einstaklinga á Gaza, þar af sjö börn, með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, að komast til Amman í Jórdaníu. Hópurinn heldur svo til Íslands í kjölfarið.
Unnið hefur verið að verkefninu undanfarnar vikur, eða síðan ríkisstjórnin tók ákvörðun um að ráðast í sértæka aðgerð til að hjálpa fólkinu að komast til Íslands í ljósi hörmulegra aðstæðna á Gaza.
Þannig hefur sérstakur verkefnahópur á vegum utanríkisráðuneytisins átt í samstarfi við sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins og útlendingastofnunar um að greiða fyrir för hópsins til Íslands. Þá hefur utanríkisráðuneytið sömuleiðis átt í virkum samskiptum við fulltrúa ísraelskra og jórdanskra stjórnvalda auk fulltrúa annarra ríkja sem hafa staðið fyrir sambærilegum aðgerðum fyrir eigin ríkisborgara og dvalarleyfishafa og alþjóðastofnanir á svæðinu sem vinna ómetanlegt starf undir gríðarlegu álagi.
Stjórnvöld í Ísrael hafa á undanförnum mánuðum, með reglulegu millibili, heimilað og greitt fyrir flutningi fólks frá Gaza um Ísrael og Jórdaníu. Auk Íslands sóttu Finnland, Frakkland, Ítalía, Spánn, Bretland og Barein ríkisborgara sína eða dvalarleyfishafa á landamæri Gaza og Ísraels í dag.
Þegar einstaklingar fá dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar er það almennt á þeirra ábyrgð að ferðast til Íslands, en í ljósi þeirra hörmulegu aðstæðna sem uppi eru á Gaza var ákveðið að takast á hendur sérstakt verkefni og hjálpa einstaklingum á svæðinu með dvalarleyfi á Íslandi að komast til landsins.
„Það kom ekki annað til greina og starfsfólk utanríkisráðuneytisins á mikið hrós skilið fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæður. Mér er létt og það gleður mig sérstaklega að vita af hópnum á leiðinni hingað í frelsið og öryggið á Íslandi og nú munum við öll sem eitt leggja okkur fram við að taka vel á móti þessum einstaklingum, ekki síst börnunum, sem hafa lifað svo miklar hörmungar að undanförnu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.