Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2025 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra sótti ráðstefnu í New York um tveggja ríkja lausnina

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpar ráðstefnu um tveggja ríkja lausnina svokölluðu í New York. - myndMynd/Stjórnarráðið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra áréttaði í ávarpi sínu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um tveggja ríkja lausnina svokölluðu að eina raunhæfa leiðin að friði milli Ísraela og Palestínumanna fælist í því að ríki heims viðurkenndu og raungerðu sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna og að sjálfstætt ríki Palestínu tæki sér stöðu við hlið Ísraelsríkis. Öllum væri ljóst að núverandi ástand væri óbærilegt og gengi ekki lengur og stíga þyrfti það skref til fulls sem svo lengi hefði verið talað um.

Ráðstefnan í New York er haldin á grundvelli ályktunar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna frá því í fyrra og hafa frönsk og sádi-arabísk stjórnvöld haft forystu um skipulagningu hennar. Markmiðið með ráðstefnunni er að marka skref í átt að tveggja ríkja lausninni svonefndu með því að grípa til skilgreindra og raunhæfra aðgerða sem miði að því að til verði tvö ríki hlið við hlið, Ísrael og Palestína, sem lifað geti í friði og samlyndi. Ávarpið má finna hér.

„Þessi ráðstefna hefur sýnt svart á hvítu hverju samstöðumátturinn getur skilað. Hér hafa orðið mikil tíðindi og áhrifaríki á borð við Frakkland og Bretland tilkynnt að þau hyggist viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Við Íslendingar höfum verið mjög skýr í okkar málflutningi og tekið þátt í þrýstingi og gagnrýni á hendur framgöngu Ísraels á Gaza. Það er ljóst að það skilar árangri þegar ríki taka sig saman og beita sér af fullri einurð,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Ástandið á Gaza og Vesturbakkanum hefur aldrei verið verra og það er á ábyrgð ríkja heimsins að standa saman og leggja sitt af mörkum til að enda hörmungarnar. Þar munum við halda áfram að beita okkur af fullum þunga.“

Hún hitti einnig António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í heimsókn sinni til New York og var ástandið í Mið-Austurlöndum þar til umræðu, sem og ólöglegt innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Þá fjölluðu þau Þorgerður Katrín og Guterres um starf sem nú fer fram og á að miða að umbótum á starfsemi stofnunarinnar. Seinna í dag mun ráðherra funda með Varsen Aghabekian Shahin, utanríkisráðherra Palestínu.

  • Þorgerður Katrín ásamt utanríkisráðherrum Noregs, Jórdaníu, Frakklands, Bretlands, Sádi-Arabíu og Slóveníu. Þá er Mohammad Mustafa, forsætisráðherra Palestínu, einnig á myndinni (fjórði frá vinstri). - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta