Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. ágúst 2002 Innviðaráðuneytið

Kaupskylda félagslegra eignaríbúða

Með vísan til bráðabirgðaákvæðis IV laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, sbr. 3. gr. laga nr. 86/2002, hefur ráðuneytið aflétt kaupskyldu og forkaupsrétti af félagslegum eignaríbúðum í eftirtöldum sveitarfélögum. Heimild þessi tekur til allra félagslegra eignaríbúða í sveitarfélaginu.

Eftirfarandi sveitarfélög hafa fengið staðfestingu félagsmálaráðherra:

    Akraneskaupstaður
    Garðabær
    Hafnarfjarðarbær
    Kópavogsbær
    Mosfellsbær
    Reykjanesbær
    Reykjavíkurborg

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum