Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. september 2004 Innviðaráðuneytið

Vefsíða Rannsóknarnefndar sjóslysa opnuð

Samgönguráðherra opnaði síðuna við formlega athöfn í Stykkishólmi í gærkvöldi.
Sturla Böðvarsson opnar vef Rannsóknarnefndar sjóslysa
Vefurinn rns.is opnaður

Vefsíðan rns.is er afar vel úr garði gerð og inniheldur m.a. allar skýrslur rannsóknarnefndarinnar, en nefndin kannar orsakir allra sjóslysa þegar íslensk skip farast og rannsakar öll slys þar sem manntjón verða.

Síðunni er ætlað að upplýsa sjófarendur um eðli og orsakir slysa, og hvar og við hvaða aðstæður slys á sjó gerast.

Á heimasíðunni er leitarforrit með mjög víðtækum leitarmöguleikum sem á að auðvelda sjófarendum að nálgast gögn hvers slyss fyrir sig. Síðan er líka gagnvirk, þar sem hægt er að tilkynna slys til rannsóknarnefndarinnar í gegnum heimasíðuna.

Um merkilegan áfanga er að ræða í starfi rannsóknarnefndar sjóslysa og binda menn miklar vonir við að hin nýja vefsíða eigi eftir að koma að miklu gagni í starfi nefndarinnar í framtíðinni.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum